Ævintýraflokkur í Vindáshlíð – dagur tvö

Dagurinn í dag var svokallaður öfugur dagur sem einkenndist af því að fólk klæddi sig í fötin öfug og dagskrá dagsins var í öfugri röð. Við byrjuðum því á að vekja stelpurnar með vögguvísum og bjóða þeim góða nótt. Þær voru aðeins hissa á þessari vitleysu í byrjun en tóku svo þátt í leiknum. Í morgunhugleiðingunni ræddum við svolítið um Biblíuna og lærðum m.a. að orðið Biblía þýðir bókasafn og inniheldur hún 66 bækur eða rit. Við ræddum líka mikilvægi þess að hver og ein okkar átti sig á því hvaða kostum við búum yfir og hvaða eiginleikar það eru sem gera okkur að flottri stelpu.
Við borðuðum pítur í hádegismat sem runnu ljúflega niður og að mat loknum var blásið til Hlíðarhlaups en þá er hlaupið héðan frá húsinu og niður að hliði. Þetta er liður í íþróttakeppni flokksins. Svo hélt hópurinn niður í réttir þar sem farið var í leiki.
Eldhúskonurnar okkar voru búnar að baka dýrindis sjónvarpsköku og kanellengjur fyrir okkur þegar heim var komið og gladdi það mannskapinn.
Brennókeppnin hélt áfram í dag og eins og gengur hafa sumar stelpurnar meira gaman af þessu en aðrar en allar taka þó þátt. Einnig sátu margar við föndur og svo fengu þær sem áhuga höfðu að horfa á fyrri hálfleikinn í leik Englands og Noregs. Gríðarleg stemmning ríkti yfir honum.
Nú eru stelpurnar komnar í ró og hvílast vel fyrir ævintýri morgundagsins.
Bestu kveðjur frá okkur hér,
Álfheiður forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum