2.flokkur Hólavatni

Það voru spenntir krakkar sem komu upp á Hólavatn á mánudag. Farið var upp í laut í leiki eftir mat sem gaf tækifæri til að kynnast hverju öðru. Vatnið var opið eftir hádegi. Frjáls tími ásamt öðru og kvöldvaka um kvöldið eins og öll önnur kvöld.

Á þriðjudegi var farið í skotbolta eftir morgunstund, en morgunstundir eru á hverjum morgni með fræðslu um kristna trú. Í þessum flokki tókum við tvo morgna í að æfa okkur að fletta upp í Nýja Testamentunum en við fengum 60 eintök að gjöf frá félagssamtökunum Orðinu og þökkum við kærlega fyrir það.

Á miðvikudag var meðal annars farið í svokallaðan tuskuleik þar sem krakkarnir þurftu fimlega að forðast útstrokanir á pennastrikum frá foringjum en börnin geta útskýrt þetta nánar. Eftir hádegi var skellt fram forláta rennibrautadúk sem er segldúkur sem sprautað var á úr brunaslöngunni niður brekkuna framan við hús. Þetta reyndist var geggjað sport og krakkarnir voru svaka ánægð með uppátækið.

Á fimmtudag var skellt í fótboltakeppni við foringjana og foringjarnir unnu 7-4. Engin miskunn þar á ferð. Önnur tækifæri voru nýtt til að sýna börnunum kærleika. Eftir svita og tár (eða þannig) fóru barasta allir í sturtu og skelltu sér í sitt fínasta púss fyrir veislukvöldið. Prúðir krakkar tóku svo góðan þátt í kvöldvökunni í framhaldi. Eftir það komum við krökkunum á óvart (sumum) með því að fara niður að vatni og kveikja upp í varðeld og grilla sykurpúða.

Á hverju kvöldi voru kvöldvökur með leikritum og miklum söng (þau tóku vel undir) ásamt hugleiðingu um lífið og trúna í stuttu máli. Krakkarnir tóku góðan þátt í kvöldvökunum. Vikan einkenndist af fremur blautri veðurspá en það reyndist oft vera rangt og oft hitastig í kringum 15-19°C.

Á föstudag er stefnt að því að ganga út í Hólakirkju með krakkana og enda í hádegismat áður en rútan fer með okkur til Akureyrar og þetta ævintýri endar.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum