Kveðjustund í 1. flokk

Kveðjustund og …

Þá er dvöl okkar í 1.flokki í Vindáshlíð nú senn á enda, og þvílíkir dýrðardagar sem við höfum fengið saman í Hlíðinni okkar fríðu. Veðursældin, maturinn, gleðin og vináttan hjá okkur er búin að vera dásamleg, og margar stúlkur sem fara heim í dag með nokkrar nýjar vinkonur.

Flokkurinn er búinn að ganga gríðarlega vel og mikil gleði að fá að hefja sumarið okkar svona. Helsta vandamál flokksins er að mati stelpnanna afar ósvífinn tannburstaþjófur sem hefur farið hér um eins og þeytivinda og tekið til sín ófáa tannburstana. Sem betur fer eru til góðar varabirgðir af tannburstum hér í Vindáshlíð, og skal foreldrum og forsjáraðilum ekki undra ef nýr tannbursti kemur heim með ykkar barni. Foringjarnir eru ekki jafn vissir og stúlkurnar um að hér sé raunverulega við þjóf að eiga, heldur frekar ungar stúlkur sem eru ekki alltaf alveg viss um hvar þær láta frá sér hlutina sína. En þið látið ykkur ekki bregða ef stelpan ykkar kemur heim með a.m.k einn tannbursta til vara.

Veisludagurinn í gær var fullur af ævintýrum. Úrslitaleikurinn í brennó fór fram og lönduðu stelpurnar í Eskihlíð titlinum brennómeistarar. Í þessum töluðu orðum eru þær svo að etja kappi í foringjaleiknum okkar, þar sem þær keppa á móti úrvala liði foringja. Í kjölfar þess leiks fá foringjarnir svo stelpurnar í Barmahlíð með sér í lið, en þær lentu í öðru sæti. Saman takast foringjarnir og Barmahlíð svo á við allar hinar stelpurnar í flokknum. Svona ljúkum við brennó-hátíðinni hér í Vindáshlíð.

Í gær var líka haldinn hinn klassíski Vinagangur, þar sem hvert herbergi býður uppá þjónustu eða skemmtun fyrir hinar stelpurnar í flokknum. Þá geta allar stelpur og foringjar gengið á milli og fengið nudd, hárgreiðslu, förðun, andlitsdekur, tattoo eða hvað svo sem stelpunum dettur í hug að bjóða uppá. Þessi hefð er gríðarlega skemmtileg til að koma okkur öllum í gírinn fyrir veislukvöldið. Eftir vinagang hittumst við svo í kirkjunni klukkan 18:00 í hátíðarstund, þaðan „ófum við mjúka“ sem er gömul og góð Vindáshlíðarhefð sem inniheldur söng og dans niður frá fánastöng og á fótboltavöllinn. Þaðan fóru öll herbergi í herbergismyndatöku áður en veislupizzan var borin á borð og foringjarnir settu sig í hin ýmsu hlutverk á veislukvöldvökunni. Það voru þreyttar og mjög glaðar stelpur sem fóru að sofa í gær eftir að enda daginn saman á hugleiðingu þar sem fjallað var um hæfileika þeirra hverrar og einnar, og hvað þær eru dýrmæt sköpun Guðs. Við ætlum að halda áfram með það þema í lokastundinni okkar á eftir.

Síðustu daga höfum við lagt áherslu á gleði og þakklæti í boðuninni, og gerðu stelpurnar til að mynda gleðitré á biblíulestrinum í gær. Þar fengu  þær allar eina grein í tréð, þar sem þær gátu skrifað eitthvað sem veitti þeim gleði og þær voru þakklátar fyrir. Þar kom fram margt gott, eins og fjölskyldan þeirra, vinirnir, dýrin, sólin, Vindáshlíð, Guð, og margt fleira. Það er búið að vera dásamlegt að eiga þessar stundir, biblíulestur og hugleiðingar, með stelpunum í þessu flokki, og þær duglegar að deila sínum skoðunum og hugmyndum.

Heimþráin hefur minnkað eftir því sem liðið hefur á flokkinn, en lúsmýið hefur heldur betur vaknað til lífsins. Þannig hefur helsta hlutverk þessarar forstöðukonu undanfarna tvo daga verið að hringja eftir samþykki foreldra til að gefa stelpunum þeirra lóritín til að stemma stigu við kláða undan bitum. Foreldrar mega því reikna með að stelpurnar komi heim með bit, þó nokkrar hér dansi um gangana stoltar af því að vera ekki vinsælar meðal þessara flugna. Við hinar öfundum þær mjög.

En við hlökkum til að sjá ykkur á Holtaveginum á eftir klukkan 14:40.

Takk fyrir að treysta okkur fyrir þessum snillingum sem eru börnin ykkar. Mikið svakalega er búið að vera gaman að fá að kynnast þeim öllum <3

Kær kveðja,

Tinna Rós forstöðukona

Dagur tvö er að kveldi kominn hér í Vindáshlíð, og við keppumst við að reyna að hægja á tímanum. Þetta líður alltof fljótt.

Hér er komin ró í húsið og flestar stelpurnar steinsofnaðar eftir frábæran dag. Í gærkvöldi, á fyrsta kvöldi flokksins, fengum við foringjarnir ágætis upphitun fyrir sumarið, þegar heimþrárfaraldur skók Hlíðina. Sem betur fer náði okkar færa og frábæra starfsfólk að koma öllum í ró á endanum, og þreyttar stúlkurnar steinsváfu í alla nótt. Kvöldið í kvöld var svo allt önnur ella og flestar þegar sofnaðar þegar þetta er skrifað klukkan 22.

Eins og víða á og í kringum höfuðborgarsvæðið var bongóblíða hér í Kjósinni í dag. Við þökkuðum þó fyrir vindinn sem fylgdi því bæði passaði hann uppá að okkur yrði ekki of heitt, og hann hélt líka lúsmýinu fjarri. Við erum því ekki farin að sjá nein bit af ráði – og vonum að elsku lúsmýið haldi sig frá okkur sem lengst.

Dagskráin er búin að vera þétt og skemmtileg frá því stelpurnar mættu til okkar í gær. Brennókeppnin er þegar komin vel á veg, en þar keppa herbergin á móti hvort öðru í riðlakeppni þar sem fjögur lið komast í undanúrslit og svo úrslit sem háð eru á veisludegi. Þá eru sjö af ellefu herbergjum búin að sýna leikrit á kvöldvöku, og flestar stelpurnar mjög duglegar að taka þátt í fjölbreyttum íþróttakeppnum sem íþróttaforinginn okkar býður uppá. Þá hafa stúlkurnar verið iðnar í vinabandagerð og föndri, en auðvitað höfum við fært allt slíkt út á tún í góða veðrinu og til dæmis var boðið uppá steinamálun í föndurstund í dag. Það komu ýmis glæsileg listaverk úr þeirri stund. Mikill metnaður er fyrir innanhúskeppninni, og margar stelpur sem keppast við að halda herbergjunum sínum hreinum og vel skreyttum.

Í dag héldum við í göngutúr og skoðuðum tvo fossa hér í nágrenni Vindáshlíðar, fyrst Pokafoss sem er bara hérna rétt hjá okkur, og svo var haldið áfram göngu alla leið að Brúðarslæðu, sem er um 20-30 mínútna gangur. Þar fengu stelpurnar að vaða og njóta sín í góða veðrinu, og nesti var borðað þar í náttúrufegurðinni.

Á Biblíulestrinum í morgun ræddum við um Biblíuna og æfðum okkur að fletta upp í henni. Við töluðum líka um Jesú sem millistykki á milli Guðs og manna, og skemmtilegar umræður mynduðust um hver Guð sé og hvaðan hann komi. Á hugleiðingu gærkvöldsins ræddum við um mikilvægi þess að koma vel fram við hvort annað, og hvernig gjörðir og orð geta skilið eftir sig ör. Í kvöld ræddum við svo um miskunnsama samverjann og hvernig við getum verið til staðar fyrir hvort annað. Hópurinn er ótrúlega virkur í umræðum, forvitinn og opinn að deila sínum upplifunum og hugmyndum. Það er frábært. Þær eru líka afskaplega duglegar að taka undir í söng, þó þær þekki sjaldnast laglínur laganna sem við erum að syngja. En hljómurinn batnar sannarlega með hverri endurtekningu á lagi.

Við hlökkum allar til að takast á við nýjan dag á morgun, útsofnar og ferskar, með sólarvörnina að vopni.

Þangað til næst,

Tinna Rós, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum