
VEISLUDAGUR
Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hjá okkur í Vatnaskógi. Dagskráin er þétt að vanda. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, bátar og veiðar, íþróttahús, listasmiðja o.s.frv. Eftir hádegi verður sannkölluð knattspyrnuveisla sem líklega mun slá við HM stemmningunni sem víða ríkir í dag. Á knattspyrnuvellinum munu Stjörnu- og Draumaliðin etja kappi við lið foringja í fótbolta sem en það þykir einstaklega sterkt þessa dagana eftir kaup á nýjum forstöðumanni frá Sviss. Búast má við svita, tárum og brosum. Heiðurinn er sannarlega undir hjá foringjaliðinu og montréttur andstæðinganna tryggður ef svo ólíklega vill til að þeir vinni. Sjáum hvernig þetta fer.
Uppfært kl: 14:00 – Leikurinn var æsispennandi. Eftir fyrri hálfleik á móti stjörnuliðinu var staðan 1-2 foringjunum í vil. Forstöðumaðurinn frá Sviss átti að sjálfsögðu fyrsta mark leiksins og fyrsta mark sumarsins. Þegar draumaliðið kom inn á í seinni hálfleik bættist heldur betur við markatölurnar og lokatölur urðu 6-7…að sjálfsögðu foringjaliðinu í vil. En þvílík barátta sem bæði stjörnu- og draumaliðið sýndu. Foringjarnir eru sammála um að fjöldi framtíðar landsliðsmanna hljóti að hafa verið í þessum flokki, enda sjaldan sem reynt hefur jafnmikið á foringjaliðið í Vatnaskógi.
Veislumatur er um kvöldið, myndataka og hátíðarkvöldvaka af lengri og dýrari gerð með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarpi Lindarrjóðri og lokaparti í spennandi framhaldssögu.
MATSEÐILL DAGSINS
Morgunverður: Morgunkorn, jógúrt og mjólk
Hádegisverður: Pasta a la Vatnaskógur
Kaffi: Döðlubrauð, smákaka og eplabaka
Kvöldverður: Grísasnitsel og kartöflubátar
Kvöldhressing: Ís
DAGSKRÁIN Á HEIMKOMUDEGI
Eftir vakningu munu drengirnir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi rétt fyrir kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.
Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst ef óvæntar breytingar verða á þessu. Símanúmerið er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá 2. flokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við
2. flokk getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.
Myndasíðan verður áfram uppfærð, í síðasta skipti á morgun: Myndir úr Vatnaskógi
Með virðingu og þökk,
Davíð Örn Sveinbjörnsson