1. Leikjaflokkur- Dagur 2 og 3

Upp er runninn veisludagur. Í kvöldmat í gær var boðið upp á grænmetisbuff og cous cous og síðan var kvöldvaka þar sem þau herbergi sem áttu eftir sýndu leikrit.

Eftir kvöldvöku fóru stelpurnar síðan út og boðið var uppá að grilla sykurpúða og fá ávaxtabita.
Það voru sælar stelpur sem lögðust á koddana, einhver heimþrá gerði vart við sig sem við erum vön að vinna með en er alveg eðlilegt í svona aðstæðum sér í lagi þar sem margar eru hér í fyrsta skipti, alger hetjur og mjög hugrakkar.

Í morgun voru stelpurnar vaktar klukkan 8:30 og var morgunmatur og fánahylling klukkan 9. Síðan var komið að því að snurfusa herbergin sín áður en haldið var í biblíulestur þar sem sungin voru lög ásamt því að stelpurnar fengu að heyra um sögu Ölvers. Þær voru mjög áhugasamar að hlusta og komu með mjög góðar spurningar og vangaveltur.

Eftir biblíulestur var haldið í brennó í blíðskaparveðri. Í hádegismat var boðið uppá strangheiðarlegar sænskar kjötbollur, kartöflumús og rabbabarasultu.

Eftir hádegismat var haldið í göngutúr niður að læk þar sem hægt var að vaða og leika sér enda alveg dásamlegt veður. Ráðskonan og bakarinn voru svo yndislegar að skutlast með smákökur og frostpinna til okkar svo kaffitíminn var við lækinn.

Eftir læk var komið að því að undirbúa sjálfan veislukvöldverðinn en þá fara allar stelpur í sturtu og eða heitapottinn og þær sem vilja fá fínar fléttur í hárið.

Framundan eru s.s. pizzur í veislumat, veislukvöldvaka sem er mjög skemmtileg en þá stíga foringjar á stokk og sýna sína einstöku leikhæfileika stelpunum til mikillar gleði.


Á morgun er áætlað að rútan leggi af stað héðan úr Ölveri klukkan 14 og verði mætt á Holtaveg um klukkan 15. Þær sem verða sóttar hingað í Ölver þarf að sækja fyrir klukkan 14.

Góðar kveðjur
Svava Sigríður Svavarsdóttir, forstöðukona

Myndir úr flokknum má finna hér:) https://flic.kr/s/aHBqjCWAZw

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum