
Þriðji dagur flokksins er runninn upp og flokkurinn í reynd hálfnaður. Í Vatnaskógi markar þriðji dagurinn merk tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti teljast nú til Skógarmanna. Til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki. Í flokknum eru fjöldi drengja sem hafa ekki áður komið í Vatnaskóg, eða rúmlega 80 drengir. Mikill fjöldi bættist því í hóp Skógarmanna í morgun.
Þessi 100 drengja hópur er feiknarlega flottur og þeir eiga hrós skilið. Það eru sannarlega hetjur sem leggja af stað í Vatnaskóg og gista þar fjarri fjölskyldum sínum, margir hverjir í fyrsta skipti.
Í gær var þétt og skemmtileg dagskrá, með áframhaldandi borðtennis, skák og fótboltaspilsmótum, knattspyrnan og frjálsu íþróttirnar voru á sínum stað og sérstök „wipe-out“ braut á vegum Taskmaster Vatnaskógar, var sett saman þar sem fjörið réð ríkjum. Smíðaverkstæðið var opið og fjölmargir sem nýttu sér það. Um kvöldið var svo kvöldvaka þar sem hinn víðfrægi leikhópur Villiöndin steig á stokk og fékk góðar undirtektir frá drengjunum. Því miður var norðaustan áttin í gær að stríða okkur og vindurinn kom í veg fyrir að hægt væri að opna bátana. En nóg var um að vera engu að síður og ýmislegt sem drengirnir hafa haft fyrir stafni.
Í dag er gert ráð fyrir áframhaldandi keppnum á öllum sviðum íþróttanna, en því til viðbótar verða hópleikir í sólinni ráðandi og áttin hefur aðeins snúist þannig að bátarnir voru opnaðir nú í morgunsárið með tilheyrandi gleði hjá strákunum. Þá mun Taskmaster Vatnaskógur halda áfram og listasmiðjan okkar opnaði þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum.
Matseðill dagsins:
Morgunmatur: Kakó og brauð
Hádegismatur: Fiskur í raspi
Kaffi: Jógurtkaka, kókoskúlur og bananabrauð
Kvöldmatur: Pylsur
Kvöldkaffi: Ávexti
Minnum á að myndir úr flokknum munu birtast inn á þessari síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Kveðja úr Skóginum,
Davíð Örn Sveinbjörnsson