Það voru spenntar stelpur sem komu í Ölver í gær. Margar voru að koma í fyrsta skipti og sýndu mikið hugrekki. Eftir að hafa gist í eina nótt í Ölveri þá er hægt að kalla sig Ölvers stelpu fyrir lífstíð.
Þegar við komum í Ölver var byrjað á að fara yfir nokkur praktísk atriði og svo var raðað í herbergi og komið sér fyrir. Herbergin eru 5 og í þeim dvelja 8-9 stelpur.Það getur verið vandasamt að deila herbergi með mörgum og standa þær sig með mikilli prýði.
Í hádegismat var boðið upp á skyr og pizzabrauð og einnig var hægt að fá boozt. Eftir hádegismat var farið í göngutúr um lóðina til þess að kynnast þessu yndislega svæði og sjá hvað Ölver hefur uppá að bjóða. Hér er t.d. hægt að fara i leiktæki, í fótbolta, gönguferð í skóginum, hér er aparóla auk allra frjálsu leikjanna sem hægt er að finna uppá í yndislegri náttúru.
Í kaffitímanum var boðið uppá rice cispies köku og bananabrauð og í framhaldi af kaffitímanum var farið í svokallaða Ölversleika þar sem stelpurnar tóku þátt í hinum ýmsu þrautum. Fram að kvöldmat var síðan frjáls leikur og margar nutu sín úti enda erum við búinn að vera einstaklega heppin með veður.
Í kvöldmat var boðið uppá steiktan fisk og kartöflubáta og voru stelpurnar duglegar að borða enda er Ölversfiskur sá besti í heimi.
Kvöldvaka er fastur liður i Ölveri og voru tvö herbergi sem buðu uppá leikrit auk þess að sungin voru ýmis sumarbúðalög ásamt því að heyra um mikilvægi þess að koma vel fram við náungann.
Í Ölveri tíðkast að foringjar taka að sér herbergi sem þau sjá um að hjálpa til við að koma í ró ásamt því að syngja, fara í leiki og þess háttar. Við köllum þessa aðila bænakonur og eftir kvöldvöku var komið að þrautum þar sem stelpurnar fóru út í dásamlega kvöldveðrið og hjálpuðust herbergin að við að finna sína bænakonu.
Þegar stelpurnar voru komnar uppí rúm var þeim komið á óvart með náttfatapartýi sem vakti mikla lukku. Í lokin fengu þær popp og var það kærkomið kvöldsnarl. Loks var komið að því að fá ró í húsið og það voru þreyttar en sælar stelpur sem lögðust á koddann. Einhverjar fengu heimþrá og við ræðum um það hér hversu gott það er að sakna því þá vitum við að við elskum.
Stelpurnar voru vaktar í morgun klukkan 8:30 og fengu morgunmat klukkan 9. Eftir morgunmat var fánahylling og síðan var komið að því að búa um og taka til í herbergjunum. Morgunstundina köllum við biblíulestur þar sem við syngjum saman, lærum um Ölver og Jesús; og æfum okkur að biðja bænir svo eitthvað sé nefnt. Eftir biblíulestur er svo komið að föstum viðburði en það er sjálf brennókeppni Ölvers.
Í hádegismat var boðið uppá hakk og spagetti og tóku stelpurnar vel til matar síns.
Eftir mat var Top model og er það alltaf vinsæll viðburður í Ölveri. Dómarar voru engir aðrir en “VÆB bræður og mamma VÆB”.
Veðrið er búið að vera dásamlegt í dag en aðeins vindasamt. Því var tilvalið að hafa kaffitímann úti en boðið var uppá skinkuhorn og kökusneiðar ásamt djús að drekka. Eftir kaffi var hægt að velja ýmsar stöðvar, vinabönd, krítar, frjáls leikur, gagaball ásamt því að skella sér í heita pottinn.
Stelpurnar ykkar eru mjög hugrakkar og standa sig afar vel. Takk fyrir að treysta okkur fyrir þeim og leyfa þeim að upplifa töfra Ölvers.
Kveðja Svava Sigríður Svavarsdóttir. forstöðukona