2. flokkur – fyrsta frétt

2. flokkur – Fyrsta frétt

Í gær, fimmtudaginn 11. júní,  lögðu 100 drengir af stað upp í Vatnaskóg. Dagskráin hófst strax við komuna og gekk einstaklega vel, með stilltu veðri sem bauð upp á skemmtilega inni- og útidagskrá. Fyrsta nóttin gekk eins og í sögu og drengirnir vel hvíldir og reiðubúnir í þétta skemmtidagskrá dagsins í dag.

Dagskrá fyrsta dags

Þegar rútan lagði í hlaðið, var drengjunum vísað inn í matsal þar sem þeir völdu sér tiltekið borð frá 1-8. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgja borðforingjar sem sjá um eftirlit yfir sínu borði og eru til staðar fyrir drengina. Þá erum við svo lánssamir að hafa með okkur um nokkra aðstoðarforingja sem eru borðforingjunum til halds og traust. Flokkurinn er því vel mannaður.

Eftir hádegi og út daginn var pökkuð dagskrá. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, bátarnir voru opnir og smíðaverkstæðið, Svínadalsdeildin sívinsæla í fótbolta hófst, svo og frjálsíþróttakeppnin sem fór af stað með góðum kúluvarpi. Að sjálfsögðu var svo íþróttahúsið opið með öllu því sem það hefur upp á að bjóða. Undirbúningur hófst fyrir skákmót, borðtennismót og fótboltaspilsmót, þá er streetball körfuboltamót í undirbúningi. Ekki nóg með það heldur mun þessi flokkur státa af Taskmaster Vatnaskógur einstakri keppni sem er innblásin af samnefndum sjónvarpsþáttum þar sem fjölbreyttar þrautir verða lagðar fyrir

Síðar um kvöldið var fyrsta kvöldvakan haldin með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt framhaldssögu..

Starfsfólk

Forstöðumaður þessa flokks er Davíð Örn Sveinbjörnsson og með honum til halds og trausts er yfirforinginn Nói Pétur Guðnason.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun í flokknum eru:

Tristan Enok – 1. borð

Benedikt Þórisson – 2. borð
Steinn Trausti Traustason – 3. borð
Fannar Logi Waldorff Sigurðsson – 4. borð

Steindór Árni Stefánsson – 5. borð

Davíð Guðmundsson – 6. Borð

Bjartur Þórisson – 7. borð

Þengill Ísar – 8. borð

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir ráðskonan Valborg Rut Geirsdóttir og með henni til stuðnings matráðurinn Jakob Freyr Einarsson. Innan þeirra sviðs starfa þau Alexandra Kvaran, Guðmundur Tómas Magnússon, Markús Guðmundsson og Þórður Héðinsson

Eins og áður segir eru foringjarnir með aðstoðarforingja, þetta eru framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í dagskrá, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru einstaklega ríkir reynslu og eru: Bjarki Þór, Haukur Ingi, Mikael Dario, Salómon Blær og Sigurvin Elí. Viðbótar aðstoðarforingjar mæta svo til leiks síðar í dag.

Það er nóg um að vera í viðhaldi á staðnum þessa dagana og eru það þeir Sigurður Jóhannesson, Snorri Rúnarsson og Þórir Sigurðsson sem koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að leggja lokahönd á ytra byrði nýs matskála í Vatnaskógi, sem er mjög spennandi að fylgjast með.

Matseðill gærdagsins

Hádegisverður: Lasagna
Kaffi: Súkkulaðikaka og kryddbrauð
Kvöldverður: Tómatsúpa og brauð.
Kvöldhressing: Ferskir ávextir

Matseðill dagsins í dag

Morgunverður: Morgunkorn, mjólk og súrmjólk

Morgunverður: Morgunkorn, mjólk og súrmjólk

Hádegisverður: Kjötbollur og grænmetisbollur

Kaffi: Ljós skúffukaka og nýbakaðar bollur

Kvöldverður: Grjónagrautur

Kvöldhressing: Matarkex og hin víðfrægu pólókex

Nokkur orð um heimþrá

Í fjölmennum hópi er ekki ólíklegt að einhver börn finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð barnanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á börnunum, geta þau komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir mörg börn í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þau hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri barnanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi einstaklingur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla barnanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir þau og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar barnanna séu þess eðlis að þau eru einfaldlega ekki tilbúin til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Davíð Örn Sveinbjörnsson

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum