Við fengum í gær 42 gríðarlega hressar og jákvæðar stelpur hingað upp í Ölver. Mikið er búið að vera gaman að kynnast þeim öllum undanfarinn sólarhring!
Ölver tók á móti okkur í sínu besta formi í gær. Sólin skein og hlýtt í lofti og gleðin eftir því.
Þegar búið var að bjóða alla velkomna og fara vel yfir öryggis- og umhverfisreglur staðarins komu stelpurnar sér allar fyrir í herbergjum. Við pössum vel upp á að vinkonur séu saman og fljótlega voru herbergin orðin verulega heimilisleg og notaleg.
Í hádegismat var skyr og smurt brauð með fjölbreyttu áleggi. Eftir hann fórum við með allan hópinn í göngutúr um svæðið okkar og alla leið niður að á. Stelpurnar tóku með sér sundföt og handklæði og nutu þess að busla í ánni í fallegri náttúrunni í ábyggilega klukkutíma. Þær tóku svo allar með sér stein(a) á heimileiðinni til að mála, enda er þetta listaflokkur.
Kaffitímann drukkum við utandyra utandyra og í kjölfarið fór af stað mikil listadagskrá – líka utandyra. Allar stelpurnar fengu að tie-dya taupoka undir listaverkin sín og þær sem vildu máluðu steinana sína á stéttinni með akrýlmálningu. Á sama tíma var boðið upp á gaga-bolta á gagavellinum og potturinn opinn. Þvílík sólarstemmning.
Í kvöldmatinn var hakk og bleikt spaghettí og eftir hana kvöldvaka þar sem stelpur í Fjallaveri og Hamraveri buðu okkur hinum upp á skemmtileg leikrit og leiki. Að kvöldvöku lokinni komu foringjar inn á herbergi til að lesa og fara í leiki og svo auðvitað – sitja hjá börnunum þar til þau lognast út af.
Þetta eru ungar stelpur og sumar óvanar að fara að heiman. Því fylgir alltaf einhver heimþrá og það er eðlilegt. Við erum vanar að takast á við þann fylgifisk sumarbúðalífsins af hlýju og þolinmæði og langoftast með góðum árangri. Þannig var það líka í gær og allar sofnuðu fyrir rest og vöknuðu kátar í morgun.