8. Flokkur – Dagur 1

Sólskinsblíðan sem að tók á móti okkur þegar fullur flokkur af spenntum stelpum mættu hérna í Ölver.

Við hittumst alllar inni í matsal þar sem við fórum yfir helstu reglur og allir foringjar kynntu sig fyrir stelpunum, skiptum okkur niður í herbergi þar sem allar vinkonur fengu auðvitað að vera saman. Þegar allar voru búnar að koma sér fyrir í sínum herbergjum var dinglað í hádegismat, skyr og pizzabrauð.

Á komudegi förum við með allar stelpurnar í göngutúr um svæðið, þær eru þó nokkrar sem að eru að koma í Ölver í fyrsta skiptið og vita nú hvar allt það helsta er á flotta útisvæðinu okkar, gangan endaði á fótboltavellinum þar sem þær fóru í ýmis skemmtilega leiki til þess að kynnast aðeins betur. Allar komu þær beint inn í kaffi þar sem boðið var uppá bananabrauð og skinkuhorn.

Eftir kaffitímann var dinglað í svo kallaðan tuskuleik, þar hlaupa stelpurnar á mismunandi stöðvar til þess að klára þrautur en þær þurfa að passa sig á tuskunum (foringjarnir), tuskurnar hlaupa á eftir þeim og ef þær ná þeim þurfa þær að gera þrautirnar aftur.

Í kvöldmatinn voru pítur með skinku og grænmeti sem runnu mjög ljúft niður hjá öllum.

Á hverju kvöldi erum við með kvöldvöku þar sem er sungið, sýnd skemmtiatriði og farið með hugleiðingu.

Að kvöldvökunni lokinni var komin tími til þess að stelpurnar myndu komast að því hverjar þeirra bænakonur væru, hvert herbergi fær tvær bænakonur sem eru stelpunum sérstaklega innan handar auk þess sem þær sjá um að koma þeim í ró fyrir svefninn og biðja með þeim kvöldbænir. Hvert herbergi fékk blað með staðreyndum um sínar bænakonur, þær þurftu að hlaupa út og finna bænakonurnar, komast að því hvaða bænakona ætti þessar staðreyndir.

Öll herbergin fundu sínar bænakonur og fóru svo að koma sér í háttinn, eftir langan og spennandi dag voru þær flestar orðnar þreyttar og var komin ró á húsið um 23 leitið.

Takk fyrir að treysta okkur með frábæru stelpunum ykkar, þær eru ekkert smá skemmtilegar og hlakka ég til þess að kynnst þeim betur í vikunni.

Ég minni á myndasíðuna okkar þar sem við setjum inn myndir á hverjum degi.

Bestu kveðjur úr Ölveri,

Lilja Maren, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum