7. flokkur í Vatnaskógi – dagur 3

Það heldur áfram að rigna á okkur í Vatnaskógi. Þriðjudagurinn 14. júlí var því frekar blautur að veðrið gott að öðru leyti. Við minnum okkur á að enginn er verri þó hann vökni og þökkum fyrir að ekki er gist í tjöldum í Vatnaskógi!

Að vanda var fjölbreytt dagskrá, keppt var í knattspyrnu, ýmsum frjálsum íþróttum þar á meðal 1500m hlaupi og langstökki, þar sem slegið var nýtt Skógarmet.

Í íþróttasalnum voru blásnir upp hoppukastalar og brugðið á leik, einnig var Mr. Beast áskorun fyrir utan íþróttahúsið.

Um kvöldið gátu þeir sem vildu fylgst með leik Frakklands og Spánar og einnig var í boði ferðir á mótorbátnum undir stjórn bátaforingja.

Matseðilinn þriðjudaginn 14. júlí

Morgunmatur – heimabakað brauð og kakó

Hádegismatur – kjúklingaborgarar

Kaffi – heimabakaðar kökur

Kvöldmatur – pylsur

Kvöldkaffi – ávextir

Í dag er veisludagur, síðasti heili dagurinn í flokknum. Dagskránni í dag lýkur með veglegri kvöldvöku og verðlaunaafhendingu.

Brottför er á morgun, fimmtudaginn 16. júlí, rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14 og því má ætla heimkomu á Holtaveg 28 milli kl. 15 og 15.30. Við biðjum um að þeir foreldrar sem sækja sína drengi hingað í Vatnaskógi séu komnir ekki seinna en 13:45.

Lúsmý:

Síðustu kvöld höfum við orðið var við lúsmý eins og oft áður og sumir drengjanna hafa verið bitnir. Við fylgjum vel með og bjóðum upp á kláðastillandi krem eða mildison. Viðbrögð við bitunum eru mismikil, sumir eru mikið bitnir en finna lítið sem ekkert fyrir bitunum meðan aðrir finna til mikils kláða og óþæginda. Í þeim tilfellum hafa ofnæmislyf gefist vel en þau slá á kláðann, við höfum alltaf samband við foreldra áður en lyf eru gefin. Okkar reynsla er einnig sú að bitin geta komið fram 1-2 dögum seinna og því geta bit og kláði blossað upp eftir að heim er komið.

Myndir frá flokknum má finna hér.

Kv. Þráinn Haraldsson, forstöðumaður 7. flokki

Fréttir úr starfinu

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum