7. flokkur – ævintýraflokkur – dagur 4

Það var einstaklega notalegt að heyra ekki í rigningunni þegar ævintýrastelpur vöknuðu á 4. degi. Eftir morgunstund skelltu þær sér út í leiki með foringjum áður en þær komu inn í ilmandi kornfleggskjúkling.

Dagskráin var þétt eftir hádegið en þar bar hæst hinn margrómaða ævintýraleik um svæðið. Í ár var leikurinn með Wicked þema og þurftu stelpurnar að flýja undan brjáluðum fljúgandi öpum sem reyndu eftir fremsta megni að koma þeim í fangelsi! Það voru þó góðar verur á sveimi sem gátu aðstoðað þær s.s. Fíeró, Glinda og Elfaba. Vonda nornin, Madame Morrible, reyndist einnig skænuhætt svo spennan var óbærileg.

Í kaffinu var boðið uppá pizzasnúða og súkkulaðiköku með lituðu kremi. Eftir kaffi var rigningin mætt á ný svo steinamálunin var færð inn í matsal. Einnig var boðið uppá heita pottinn auk þess sem foringjar voru með vinabandakennslu og undirrituð fléttaði hár. Í kvöldmatinn voru pítur sem stelpurnar voru sammála um að væru þær bestu sem þær hefðu smakkað.

Kvöldvökuskemmtunin var í höndum Hlíðavers og Hamravers og hlutu þær lof í lófa fyrir. Þegar farið var að styttast í kvöldbænina komu blaðskellandi foringjar inn í salinn og héldu „mini“-náttfatapartý. Lilja ráðskona truflaði reyndar partýið enda hafði þetta allt verið hinn mesti misskilningur og hún búin að baka vöfflur ofan í liðið! Það var því lítið annað í stöðunni en að skottast niður í matsalinn sem hafði verið dekkaður upp sem kaffihús og fá sér volgar vöfflur og kakó.

Bænakonur enduðu svo daginn með sínum herbergjum í sögustund fyrir svefninn.

Takk fyrir enn annan yndislegan Ölversdag!

Stella Rún, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum