
Í dag er þriðji dagur flokksins og í Vatnaskógi fögnum við alltaf þeim degi sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þau sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.
Til hamingju Skógarmenn!
Það er sannkallað líf og fjör í Vatnaskógi þessa dagana, bátarnir eru ávalt vinsælir, listasmiðjan iðar af sköpunargleði og íþróttahúsið nýtur mikillar aðsóknar. Gaman er að sjá hversu vel krakkarnir nýta sér fjölbreyttu dagskrána sem boðið er upp á.
Fyrir hádegismat var frjálsíþrótta-veisla út á íþróttavelli þar sem ýmsar greinar stóðu til boða fyrir krakkana að keppa í, þ.a.m. kúluvarp, langstökk, kringlukast og 400 metra hlaup. Eftir hádegismat var svokallaðri „Wipe-out“ braut stillt upp þar sem krakkarnir gátu keppst um að komast í gegnum þrautabraut á sem stystum tíma. Krökkum stóð til boða að hjálpa til við bakstur og búa til kókoskúlur fyrir flokkinn. Einnig var varúlfur, fræðslustund, pool-mót og margt annað á dagskrá.
Veðrið hefur verið ágætt í hingað til, nokkuð stillt en með rigningaskúrum inn á milli. Nú er hinsvegar farið að sjást í sólina og stefnum við á að fagna því með því að grilla pylsur úti!
Morgunmatur – Rjómalagað kakó, nýbakað brauð og allskonar álegg
Hádegismatur – Ýsa í raspi, kartöflur og salat
Kaffitími – Kókoskúlur, pizzasnúðar og smákökur
Kvöldmatur – Grillaðar pylsur með öllu
Kvöldkaffi – Ávextir
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Ástráður Sigurðsson, forstöðumaður