
Í dag mættu 48 krakkar í Vatnaskóg og framundan er viðburðaríkur og spennandi flokkur. Munu þau dvelja hér fram á miðvikudaginn 1. júlí.
Þegar krakkarnir komu á staðinn í morgun var þeim vísað inn í matsal þar sem þeir völdu sér borð frá 1-4. Það mun verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgir borðforingi sem sér um eftirlit yfir sínu borði og er til staðar fyrir krakkana.
Eftir hádegi og út daginn er pökkuð dagskrá fyrir krakkana. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, fótbolta, báta og smíðaverkstæðið, frjálsíþróttakeppnin, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira.
Það er rigningarveður en þó stillt og fremur hlítt svo krakkarnir eru ekkert feimnir við að leika úti og hafa bátarnir verið mjög vinsælir. Sumir lögðu meira að segja í að vaða út í vatn!
Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu ásamt skemmtilegum leikjum og framhaldssögu.
Foringjar sem annast dagskrá og umönnun krakkanna eru þau:
Svanhildur Reynisdóttir – 1. borð
Guðjón Daníel Bjarnason – 2. borð
Greipur Gíslason og Baldur Ólafsson – 3. borð
Guðmundur Tómas Magnússon – 4. borð
Þeim til halds og trausts eru forstöðumennirnir og feðgarnir Ástráður Sigurðsson, Pétur Sigurðsson og Sigurður Pétursson.
Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Karen Sól Halldórsdóttir. Innan hennar sviðs starfa þau Andri Sveinsson, og Helena Gunnarsdóttir.
Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Bjarki Þór Ársælsson, Kolbrún Birna Þorsteinsdóttir, María Ölversdóttir, Salómon Blær Davíðsson, Sigríður Arnarsdóttir, Sigurvin Elí Jónsson, og Steinunn Erla Sigurðardóttir.
Þá eru Sigurður Jóhannesson og Þórir Sigurðsson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að ljúka við byggingu á nýjum Matskála í Vatnaskógi.
Starfshópur þessa flokks er sérstakur að því leyti að hann samanstendur meira og minna af sjálfboðaliðum sem gefa vinnu sína í þágu Vatnaskógar. Auk fyrrnefnda munu því einnig starfsfólk bætast í hópinn sem verða hluta úr flokknum, þar á meðal Eva Sigurðardóttir, Fannar Logi Hannesson og Gunnar Þór Pétursson, ásamt hópi sjálfboðaliða sem mun mæta í vinnudag á sunnudeginum. Það er því óhætt að segja að það verði líf og fjör á staðnum þessa vikuna.
Hádegisverður: Lasagna, hvítlauksbrauð, sósa og salat
Nónhressing: Súkkulaðikaka og bananabrauð
Kvöldverður: Skyr og nýbakað brauð með allskonar áleggi.
Kvöldhressing: Ávextir
Í stórum hópi sem þessum er ekki ólíklegt að einhverjir krakkar finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.
Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð krakkanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á krökkunum, geta þau komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.
Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga krakkana í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þau hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.
Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri krakkanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi barn þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.
Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.
Við trúum því að þessi reynsla krakkanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir krakkana og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar krakkanna séu þess eðlis að þau eru einfaldlega ekki tilbúin til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Ástráður (Addi) Sigurðsson, forstöðumaður.