4.Flokkur – Vindáshlíð. Dagur 2

Heil og sæl, gærkvöldið gekk mjög vel og var ekki mikið um heimþrá enn þar sem heimþráin birtist náðu frábæru foringjarnir okkar að dreifa huganum og hjálpa þeim að sofna.

Stelpurnar voru vaktar af Sölku ræsti með kúreka tónlist og var hún einnig klædd í kúrekaföt. Þema dagsins var vís villta vestrið. Herdís umsjónarforingi hafði skreytt matsalinn og setustofuna með skrauti í anda vilta vestrisins og voru skipulögð atriði í stíl við þemað. Í morgunmat var hefðbundið úrval, hafragrautur, súrmjók, morgunkorn og mjólk. Næst tók við fánahylling svo beint niður í kvöldvökusal í biblíulestur. Í dag töluðum við um hvað við teljum trú sé, svörin frá stelpunum voru ótrúlega falleg og skemmtileg og gátum við talað saman um trúnna okkar. Beint eftir það fór svo brennókepnnin vinsæla af stað ásamt íþróttakeppnum, föndri, vinaböndum og spilum. Þá var komið að hádegismat og hann var ekki af verri endanum, hinir geisi vinsælu kjúklingaborgarar voru á boðstólnum og borðuðu þær allir mikið og vel. Næst á dagskrá var svo útivera í dag var farið í göngu að réttunum sem eru rétt hjá hlíðinni og er farið í réttarleikinn á staðnum sem stelpunum finnst mjög gaman. Íþróttaforinginn okkar hún Ilmur nýtti sér það að stelpurnar væru að fara í réttirnar og setti af stað íþróttakeppnina Hlíðarhlaup. Í kaffinu voru nýbakaðar brauðbollur og eplabaka sem Lilja bakari töfraði fram fyrir okkur og voru allir diskar vel tæmdir. Keppnir héldu svo áfram og mikið var brallað hvort sem það var í skipulögðum íþróttum eða föndri. Þegar bjallan hringdi næst var komið að kvöldmat, Þurý ráðskona hafði undirbúið ljúffengar kjötbollur með karftöflumús og brúnni sósu. Kvöldvakan var mjög vel heppnuð hjá okkur, Herdís umsjónarforingi var búin að skipuleggja skemmtilegan „ratleik“ í anda Survivor þáttana. Stelpunum var skipt upp í hópa og fékk hver hópur sinn lit og þurfti að vinna saman til að klára ýmis verkefni sem gátu verið allt frá: ógeðsdrykk, fyllla fötu með vatni úr læknum og mega bara nota matskeiðar og hitta körfubolta í körfu afturá bak. Þær komu allar mjög glaðar til baka og við þeim tók unaðsleg lykt þar sem foringjarnir höfðu undirbúið kaffihúsakvöld. Á boðstólnum voru amerískar pönnukökur ala VINDÓ með sýrópi og flórsykri og var líka búið að gera hugglega stemningu í matsalnum. Foringjar þjónuðu stelpunum og þóttust vera þjónar frá París með yfirvaraskegg og franskann hreim. Við enduðum svo daginn á að kíkja uppí kirkju í huglu og í kvöld var Bryndís með frábæra sögu um jákvæðni. Bænakonur mættu svo inn til þeirra og eyddu dýrmætum tíma saman.

Herdís okkar sér um að dæla inn myndum fyrir ykkur og er komin mappa inná Flickr sem heitir 4.flokkur Vindáshlíð enn ef hún finnst ekki þá er slóðin hér: Collection: Vindáshlíð

Yndislegt að eyða þessum tíma með stelpunum ykkar og erum við spenntar fyrir því sem koma skal

Kær Hlíðarkveðja

Andrea Anna Forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum