3. Listaflokkur – Dagur 3

Já góðan daginn!
Í gærkveldi var mikið stuð hjá okkur í Ölver en þá var Serkjó!
Stelpurnar voru allar komnar uppí rúm og héldu að næst væri bara svefn en þá brast á geggjað náttfatapartý þar sem var dansað og mikið stuð!

Í dag er algjör drauma-matseðill hjá stelpunum: grjónagrautur í hádegismat, brauðbollur og kaka sem hver og ein skreytti fyrir sig í kaffitímanum og Kornflex-kjúklingur í kvöldmat.

Í dag var heilmikið um að vera; brennó, kökuskreyting, göngutúr, tie-dye, meira föndur og svo bara almennt stuð.

Veðrið hjá okkur er búið að vera mjög gott en hefur í för með sér að lúsmýið er að stríða okkur töluvert en þessar stelpur eru svo duglegar og lausnamiðaðar að allt gengur vel með það.

Bestu kveðjur,
Bára forstöðukona

Fréttir úr starfinu

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum