3. Listaflokkur – dagur 1 og 2

Í gær uppúr hádegi voru komnar í hús yfir 40 hressar og kátar stelpur. Við söfnuðumst allar saman inn í matsal þar sem farið var yfir þær reglur sem gilda í Ölveri og skipt í herbergi. Eftir að allar höfðu búið um sig var hádegismaturinn; steiktur fiskur og kartöflubátar. Eftir hádegismat var frjáls tími í smá stund og nýttu stelpurnar tímann í að kynnast hvor annarri og kanna svæðið en veðrið var ótrúlega gott.  


Umhverfi Ölvers er gróið og fallegt og fórum við allar saman í göngutúr um svæðið. Þar voru sagðar sögur af svæðinu, nafnaleikur og kynnt fyrir þeim leikinn “Brennó” en Brennó er spilað daglega (og oft á dag).
Bananabrauð og Tívolí-kökur voru í boði í kaffitímanum og eftir kaffitímann var boðið uppá vinabanda-gerð, perl og fleiri skemmtileg verkefni.


Í kvöldmatinn var hakk og spaghetti og allar tóku vel til matar síns eftir skemmtilegan fyrsta dag. Eftir kvöldvökuna var bænakonu-leitin en þá fóru þær út og leituðu að sinni bænakonu sem er alltaf skemmtilegt.

Þær vöknuðu auðvitað hressar og kátar í morgun og fóru í morgunmat. Veðrið í dag er fallegt þó sólin sé ekki farin að skína. Fljótlega eftir morgunmat var fánahylling og morgunstund þar sem stelpurnar fengu að heyra um Kristrúnu Ólafsdóttir sem var upphafskona Ölvers.

Brennókeppnin hófst formlega eftir morgunstundina og keppnis-skapið er augljóst.
Núna eru þær í Ölvers-leikunum og spennandi dagar framundan.

Við hlökkum til samverunnar næstu daga!

Bestu kveðjur,
Bára forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum