Góðan dag
Héðan frá Ölver er allt gott að frétta – búið að vera mikið stuð og mikið brallað. Góður matur alla daga og nýbakað og gott í kaffitímanum.
Brennó-keppnin er búin að vera í fullum gangi og úrslitin verða kynnt í dag ásamt því það verður foringja-brennó þar sem stelpurnar keppa við foringjana!
Stelpurnar eru búnar að fara næstum daglega í heita pottinn sem er alltaf vinsælt, ýmislegt búið að föndra og gera vinabönd sem myndu ná marga marga metra.
Í gær var „tuskuleikurinn“ og þá var mikið fjör og mikil keppni.
Síðasta kvöldið var hátíðar-kvöldið og það var mjög hátíðleg stund. Foringjarnir héldu uppi stuðinu með leikritum á kvöldvökunni og heitt kakó og vöfflur í kvöldkaffi.
Stelpurnar ykkar eru búnar að vera svo frábærar og duglegar – þvílíkur flokkur!
Sumar hafa yfirstigið heimþrá, vonandi allar eignast nýjar vinkonur og notið þess að kynnast öðrum stelpum.
Takk kærlega fyrir okkur og vonandi koma stelpurnar ykkar glaðar og kátar heim