3. flokkur í Vatnaskógi: önnur frétt

Í dag er þriðji dagur drengjanna í Vatnaskógi og flokkurinn því hálfnaður. Í Vatnaskógi markar þriðji dagurinn merk tímamót, því þeir sem eru að koma í fyrsta skipti teljast nú fullgildir Skógarmenn. Til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki. Í flokknum er talsverður hópur drengja sem hefur ekki áður komið í Vatnaskóg. Það voru margir stoltir af sjálfum sér í morgun og tilkynntu starfsfólki og öðrum drengjum að þetta væri í fyrsta skipti sem þeir höfðu gist annars staðar.

Þessi 100 drengja hópur er gríðarlega flottur og þeir eiga hrós skilið. Það er mikill galsi í drengjunum og oft er mikill hávaði í matartímum og á kvöldvöku. Þeir leitast þó allir við að hlýða fyrirmælum starfsfólks og sýna virðingu fyrir staðnum og reglum hans.

Í gær var þétt og skemmtileg dagskrá, með áframhaldandi borðtennis, skák og fótboltaspilsmótum, knattspyrnan og frjálsu íþróttirnar voru á sínum stað og sérstök „wipe-out“ braut var sett upp í tilefni af lýðveldisafmælinu. Smíðaverkstæðið var opið og fjölmargir nýttu sér það. Um kvöldið var svo kvöldvaka þar sem hinn víðfrægi leikhópur Villiöndin steig á stokk og fékk góðar undirtektir frá drengjunum. Því miður var norðaustan áttin að stríða okkur og vindurinn kom í veg fyrir að hægt væri að opna bátana. En nóg var um að vera engu að síður og ýmislegt sem drengirnir hafa haft fyrir stafni.

Í dag er gert ráð fyrir áframhaldandi keppnum á öllum sviðum íþróttanna en því til viðbótar verður einn vinsælasti hópleikurinn fyrr og síðar í Vatnaskógi haldinn í dag, hermannaleikurinn. Leikurinn er þó með breyttu sniði en áður og fylgir reglum „capture the flag“ eða „gríptu fánann“. Vonandi lægir þannig að hægt sé að opna bátana, annars verður boðið upp á sætaferðir í mótorbát staðarins.

.

Matseðill dagsins:

Morgunmatur: Hafragrautur og morgunkorn.

Hádegismatur: Lasagne

Kaffi: Kaka, kókoskúlur og kryddbrauð

Kvöldmatur: Kjúklingapasta

Kvöldkaffi: Mjólkurkex og pólókex.

Minnum á að myndir úr flokknum birtast hér: Myndir úr Vatnaskógi

Kveðja úr Skóginum,

Jón Ómar Gunnarsson

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum