
Mamma mía dagurinn var alveg frábær. Í matartímum stigu foringjar á stokk með skemmtilegum Mamma mia show-um og slógu alveg í gegn. Eftir hádegismat í gær var komið að hinum frábæru og vinsælu Ölversleikum en þá keppa herbergin sín á milli í hinum ýmsu þrautum. Í kaffitímanum í gær var boðið uppá pizzasnúða og súkkulaðibitakökur við mikinn fögnuð. Eftir kaffi fóru stelpurnar í brjóstsykursgerð og heita pottinn. Í kvöldmat voru vefjur og tóku stelpurnar vel til matar síns. Eftir hefðbundna kvöldvöku var enn eitt óvænt kvöldatriði og í þetta sinn var kvikmyndakvöld þar sem horft var á Mamma mía að sjálfsögðu. Stelpurnar fengu ávexti og brjóstsykrana sína til að maula á yfir myndinni. Kvöldin ganga mjög vel enda eru þær þreyttar og sælar eftir góða og skemmtilega dagskrá og enn leikur veðrið við okkur.
Eftir morgunmat, fánahyllingu og tiltekt var komið að morgunstund. Stelpurnar eru duglegar að hlusta og taka þátt í umræðum. Í morgun lögðum við áherslu á mikilvægi góðra gilda og að finna og hlúa að styrkleikum sínum. Hver og ein fékk síðan tíma til að hugsa að sínum gildum og styrkleikum og skrifa niður, sjá á meðfylgjandi mynd. Á þessari slóð má síðan sjá myndir úr flokknum: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/collections/72157629303374661/
Nú er enn ein umferðin í brennókeppninni hafin og farið að styttast í annan endann hjá okkur. Í hádegismat verður boðið uppá grænmetisbuff og á dagskrá í dag er skemmtilegur eltingaleikur og hæfileikakeppni. Á morgun er síðan veisludagur en það er síðasti heili dagurinn okkur hér í Ölveri. Brottför úr Ölveri er klukkan 14 á sunnudaginn og erum við þá komin á Holtaveg um klukkan 15. Þær sem verða sóttar hingað í Ölver þá er mikilvægt að þær séu sóttar fyrir klukkan 14.
Kveðja
Svava Sigríður Svavarsdóttir, forstöðukona