2. Ævintýraflokkur – Dagur 2 og 3

Það er aldeilis búið að vera nóg að gera hjá okkur hér í Ölveri og veðrið hefur verið með fínasta móti. Brennókeppnin er farin af stað og i fyrradag skelltum við okkur í gönguferð niður að læk þar sem hægt er að vaða og hafa gaman. Eftir lækinn var kaffitími og síðan var boðið uppá allskyns stöðvar og hægt var að fara í heita pottinn. Eftir kvöldmat var hin sívinsæla kvöldvaka en hún endaði á óvæntan hátt þegar foringarnir skelltu í vinsælan leik í ævintýraflokk sem kallast Ævintýragangur. Stelpurnar skemmtu sér vel og endaði ævintýragangurinn á því að þær fengu popp og appelsínur í kvöldkaffi. Það voru þreyttar en sælar stelpur sem lögðust á koddann þetta kvöldið og það tók ekki langan tíma að fá ró í húsið enda allar tilbúnar í góðan nætursvefn.

Upp rann 17.júní, þjóðhátíðardagur Íslendinga. Stelpurnar voru vaktar með hoppandi og skoppandi foringjum að syngja Hæ hó jibbý jeij við mikinn fögnuð stelpnanna. Morguninn var nokkuð hefðbundinn, morgunmatur, fánahylling, tiltekt og morgunstund. Í morgunstundinni ræddum við um mikilvægi þess að rækta hæfileika sýna. Einnig drógu stelpurnar eigið biblíuvers úr öskju sem þær svo skrifuðu niður á blað og skreyttu blaðið. Síðan var brennó og eftir það var komið að þjóðhátíðar grjónagraut sem var að sjálfsögðu litaður í fánalitunum.

Eftir hádegismat fórum við í skrúðgöngutúr sem var afar hressandi þó það blési soldið á okkur. Í kaffi var stórglæsileg þjóðhátíðarkaka sem rann ljúft ofaní stelpurnar. Eftir kaffi var síðan vatnsblöðrustríð sem vakti afar mikla lukku. Það var því kærkomið að komast í heitapottinn og ýmsar skemmtilegar stöðvar fram að kvöldmat. Í matinn voru hamborgarar sem voru afar góðir. Stelpurnar eru svo duglegar að hrósa ráðskonunni fyrir matinn og það er gamam að fylgjast með því. Kvöldvakan var í styttra lagi því allt í einu var fjallkonan mætt með þær fréttir að Danirnir væru mættir og vildu fá Ísland aftur. Þar með var skollinn á enn einn hápunktur ævintýraflokks, sjálfur ævintýraleikurinn! Það voru þreyttar og glaðar stelpur sem mættu á kaffihúsastemmingu eftir frábæran ævintýraleik, sem einkennist mikið af hlaupum, þar sem þær fengu karamellulengjur, grautarlummur og heitt kakó. Eftir góðan og viðburðaríkan þjóðhátíðardag voru stelpurnar nokkuð fljótar að komast í ró og sofna.

Í morgun voru stelpurnar vaktar með lagi úr kvikmyndinni Mamma mía enda er Mamma mia þema í dag. Eins og þið getið lesið um þá er nóg að gera hjá okkur og stelpurnar glaðar. Í morgunstund í morgun var viðfangsefnið þakklæti. Stelpurnar eru mjög duglegar að hlusta og taka þátt í umræðum. Margar sýna mikið hugrekki þegar þær koma fram í leikritum á kvöldin og samskipti ganga vel. Veðrið hefur verið okkur hliðhollt, það hefur verið þurrt og stelpurnar duglegar að leika sér úti enda fátt betra en útivera í sveitinni. Nú er brennókeppnin hafin og framundan er síðan cornflakes kjúklingur í matinn. Síðan verður dagurinn án efa stútfullur af gleði og glaum.

Bestu kveðjur

Svava Sigríður Svavarsdóttir, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum