17.júní í Hlíðinni

Jæja fyrsti heili dagurinn liðinn og það var nú meiri dagurinn, 17.júní og því var fagnað með pompi og prakt.

Stelpurnar voru vaktar með söng og gleði því framundan voru hátíðarhöld. Matsalurinn var skreyttur með íslenska fánanum um alla veggi og starfsfólk klætt í útileguföt. Eftir morgunmat fóru stelpurnar upp að fána og þaðan lá leiðin niður í kvöldvökusal á biblíulestur. Í biblíulestri dagsins ræddum við um hvernig kristin trú kom til landsins og hvernig hún hefur mótað landið okkar og menningu. Stelpurnar voru mjög duglegar að taka þátt og spyrja spurninga. Við sungum svo nokkur skemmtileg lög, sem er auðvitað stór hluti af dvölinni þeirra hér. Eftir biblíulestur hófst frjáls tími, en þar fóru fram nokkrir brennóleikir og í föndurherberginu var í boði að búa til fánaskraut í tilefni dagsins. Íþróttakeppnir morgunins voru kóngulóalabb yfir fótboltavöllinn á eins stuttum tíma og þær gátu og einnig var minniskeppni þar sem stelpurnar áttu að muna orð af blaði.

Í hádegismatinn fengu stelpurnar kjötbollur og kartöflumús. Maturinn klikkar seint í Hlíðinni og hér eru alltaf flestir pakksaddir eftir alla matartíma. Það er einhvað sérstakt sem gerist í eldhúsinu þegar ráðskonan byrjar að elda hér.

Í tilefni þjóðhátíðardagsins héldum við skrúðgöngu með okkar eigin fjallkonu í upphlut sem endaði í kirkjunni okkar. Þar las fjallkonan texta í tilefni dagsins og svo fengu stelpurnar útskýringu á hvernig útivera dagsins virkaði. En það var geggjað karnival með nokkrum stöðvum sem herbergin skiptust á að fara á. Meðal annars var spákona sem spáði fyrir um framtíð þeirra og allskonar myndagátur og keppnir. Á einni stöðinni var svo boðið upp á popp úr geggjaðri poppvél og auðvitað nammipoka.

Eftir karnival stemminguna var komið að kaffitíma og eldhúsið var búið að baka stærstu fánaköku sem sést hefur, auðvitað skreytt fallega íslenska fánanum okkar í tilefni dagsins. Einnig var í boði nýbakað kryddbrauð með osti&smjöri fyrir þær sem vildu.

Eftir kaffitímann hélt svo frjálsi tíminn áfram með fleiri brennókeppnum og nýju föndri, sem var perlur og armbandagerð í þetta skipti. Íþróttakeppnir þessa frjálsa tíma voru rúsínuspýtingur og broskeppni. Í rúsínuspýting eru þær hreinlega bara að reyna spýta rúsínum eins langt og þær geta og í broskeppninni er brosið þeirra mælt með reglustiku, stærsta brosið vinnur 🙂

Í kvöldmat fengu stelpurnar fánalitaskreytt skyr og nýbakað brauð, það er ótrúlegt hvað stelpurnar borða meira af skyri þegar það er blátt eða rautt. Kvöldvaka dagsins fór svo fram úti, en stelpunum var skipt í tvö lið og fóru í leikinn Capture the flag. Þar kepptu rauðir á mótu bláum að reyna ná flaggi hins liðsins og koma því í sitt mark, þær skemmtu sér allar konunglega. Eftir kvöldkaffið, þar sem boðið var upp á peru og mjólkurkex, fóru stelpurnar í hugleiðingu þar sem Gréta foringi talaði við stelpurnar aðeins um framkomu, vináttu og virðingu. Það hefur mjög lítið borið á drama/ósætti í flokknum en stelpurnar voru sammála um að það sé alltaf mikilvægt að rifja upp og hlusta á spjall um framkomu annarra og hvernig við getum sýnt öðrum virðingu. Þær eru svo duglegar að hlusta og taka þátt í spjalli og söng, algerlega til fyrirmyndar <3

Eftir hugleiðingu enduðu þær kvöldið á að tannbursta í læknum og eyddu svo góðum tíma með bænakonum inni á herbergjum 🙂

Minni á að kíkja á myndasafnið okkar, en þar halda áfram að streyma inn myndir úr flokknum 🙂

kveðja úr Hlíðinni fríðu

Marín Hrund forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum