ATH: TÖF Á HEIMKOMU VEGNA LOKAÐARA HVALFJARÐARGANGA –
LÍKLEGUR HEIMKOMUTÍMI ER 15:20 – 15: 30
Það er óhætt að segja það að gærdagurin hafi verið eftirminnilegur þar sem við fengum að njóta sólmyrkans en við færðum okkur yfir í félagsheimilið Miðgarð og nútum pylsuveislu á eftir.
Nú er síðasti heili dagurinn kominn vel á veg hér í Vatnaskógi og dagskráin er þétt. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, fussballmótið klárað í íþróttahöllinni. Eftir hádegi er knattpyrnuveisla fyrst kepptu drauma- og stjörnulið drengja við ógnarsterkt lið foringja í knattspyrnu og höfðu drengir sigur 5 – 4 og á eftir spiluð drengjaliðin innbyrðis, og svo verður boðið upp á vatnafjör og heita potta, pílukeppni og svo skoruðu nokkrir drengir á Bjart foringja í skák auk fleiri viðburða. fram að kvöldmat en þar verður veislukvöldverður.
Veðrið í dag og síðustu daga verið fínt smá skúrir inná milli og nánast logn.
Dagskrá kvöldsins er svo eitthvað í þessa átt. Veislumatur um kvöldið, myndataka og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarp Lindarrjóðri og léttu skonrokki að hætti foringjanna.
Matseðill
fimmtudagur 13. ágúst – veisludagur
Morgunverður: Morgunkorn, hafragrautur og súrmjólk
Hádegisverður: Pasta með salati og hvítlauksbrauði
Síðdegishressing:
Kvöldverður: Schnitzel og veglegt meðlæti + baukur
Kvöldhressing: Kex og mjólk
Föstudagurinn 14. ágúst
Morgunverður: Morgnverður að hætti hússins.
Hádegisverður: Pizza
Dagskráin á heimkomudegi (föstudegi)
Drengirnir hafa verið vaktir kl. 8:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala kl. 09:00, þá munu drengirnir fara í morgunmat kl. 9:30. Eftir það pakka þeir í töskur, finna dótið sitt og tæma herbergin. Því næst halda þeir svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:20/15:30. ath. breyttur heimkomutími
Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá ævintýraflokki 11 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK á Íslandi, sími 588 8899.
Myndasíðan okkar er hér fyrir neðan fleiri myndir munu bætast við síðar í kvöld:
https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/55462147620/in/dateposted-public/
Með virðingu og þökk,