Veisludagurinn var mjög skemmtilegur enda lék veðrið við okkur líkt og undanfarna daga. Notalegur hátíðarkvöldverður ásamt frábærri kvöldvöku þar sem starfsfólk skemmti stelpunum með klassískum sumarbúðaleikritum og veltust stelpurnar um af hlátri.
Það voru þreyttar og alsælar stelpur sem lögðust á koddann á þessu fína veislukvöldi og áttu góða stund með leikjum, lestri og söng með bænakonum sínum fyrir háttinn.
Planið var að vekja stelpurnar klukkan 8:30 í morgun en ákveðið var að seinka því um 15 mínútur þar sem alger ró ríkti í húsinu og svefninn er svo mikilvægur. Það er svo krúttlegt hvað þeim finnst gaman þegar foringjarnir vekja þær með tónlist og glensi.
Eftir morgunmat og fánahyllingu var komið að því að pakka niður og ganga frá herbergjunum sínum því framundan var úrslitakeppnin í brennó og hápunkturinn er auðvitað foringjabrennóinn en þá spila allar stelpurnar á móti foringjunum.
En fyrst var morgunstund sem var haldin í lautinni i þetta skiptið enda svakalega gott veður. Við sungum lög og skiptumst á að segja frá því hvað við vorum þakklátar fyrir í flokknum. Það sem stóð uppúr var brennó, leikrit, áin, kynnast nýjum vinkonum og góðir foringjar.
Veðrið er búið að vera alveg frábært í þessum flokki og því einstaklega gaman að enda flokkinn á góðu pylsupartýi úti í góða veðrinu. Áður en haldið er heim á leið verður að sjálfsögðu kveðjustund sem getur reynst mörgum erfið en afskaplega lærdómsrík.
Fyrir hönd sumarbúðanna í Ölveri þá þakka ég ykkur traustið og vil hrósa ykkur fyrir að gefa stelpunum ykkar tækifæri til að koma og njóta með okkur hér á staðnum sem við elskum allar að vera á. Þar til næst.
Svava Sigríður Svavarsdóttir, forstöðukona.