Tannburstun í læknum góða :)

Vindáshlíð 3.fl dagur 1

Við keyrðum af stað í grenjandi rigningu frá Holtaveginum, 85 spenntar og hressar skvísur, tilbúnar í frábæra viku í Hlíðinni fríðu. Þegar við komum inn í Kjósina, tók á móti okkur sól og dásamlegt veður sem hélst fram á nótt. Við nýttum okkur það vel og vorum mikið úti. 

Þegar komið var í Vindáshlíð var farið yfir reglur og raðað niður í herbergi. Síðan tók við að búa um sig og græja herbergið áður en farið var í kaffitíma þar sem við fengum dýrindis bollur og kanillengjur með djús. Þá var tilkynnt hvaða herbergi skyldu byrja að keppa í brennó, hvaða herbergi skyldu vera með kvöldvökuatriði, hvaða íþróttagreinar væru í boði þann daginn, bros og húshlaup, einnig hvað væri í boði að gera í föndurherbergi. 

Langflestar hafa komið áður en þó einhverjar í fyrsta sinn. 

Í kvöldmat var grjónagrautur, slátur, rúsínur og kanilsykur, sem féll vel í mannskapinn. Þar sem að sólin skein enn á lofti og fallegt veður, ákváðum við að fara eftir mat út á fótboltavöll í smá leiki fyrir kvöldvöku. Þar var stuð í löggu og bófa með ýmsum skemmtilegum reglum, sungið og dansað. 

Á kvöldvöku voru 3 herbergi með atriði og voru allar stelpur duglegar að taka þátt í söngvum og hreyfileikjum. 

Kvöldkaffið rann ljúflega niður og síðan fórum við inn í setustofu að heyra hugleiðingu kvöldsins en hún var um að komast í gegnum erfiðleika/kvíða… að fara að “næsta staur” í lífinu. Hvað við getum gert þegar við erum stressuð fyrir einhverju og ræða um alls konar tilfinningar. 

Það var mikil spenna að vita hver yrði bænakona hvers herbergis en þær fengu ekki að vita það fyrr en var búið að pissa, bursta og hátta. Þá komu bænakonurnar inn á herbergi til að spjalla og kynnast stelpunum betur, fara yfir daginn og hvernig þær hefðu það fyrir svefninn. 

Það gekk misvel að sofna í gær en flottu foringjarnir okkar eru duglegir að knúsa og hughreista liðið og allar sofnuðu á endanum. 

Margar voru vaknaðar snemma í dag en þó nokkrar sem vildu fá að kúra og sofa til 9. 

Flottur dagur framundan með leikjum, brennó, föndri, spjalli og söngvum 

Kærleikskveðjur úr Kjósinni, 

P.s alltaf að koma fleiri og fleiri myndir svo endilega fylgist með okkur 

Hanna Lára forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum