

Í ár ætlum við að bjóða upp á tvo jólaflokka í Vindáshlíð.
Jólamæðgnaflokkur verður helgina 27.-29. nóvember. Þar er tilvalið fyrir mæður og dætur að koma saman og eiga skemmtilega og notarlega helgi og byrja aðventuna á því að eiga góða stund saman
Jólaflokkurinn er helgina 4.-6. desember og er fyrir 10-12 ára stúlkur. Þar verður föndrað og hver veit nema að við skreytum piparkökur. Það er ekkert eins gaman og að byrja jólafjörið í Hlíðinni góðu.
Hægt er að skrá sig í flokkana hér á skráningarsíðunni okkar.