
Góðan daginn! Í dag kom flottur hópur af stelpum til okkar. Það var gaman að sjá hversu margar þeirra höfðu komið til okkar áður. ❤️
Við byrjuðum á því að fara yfir reglurnar okkar og tala um hversu mikilvæg gullna reglan er: Komdu fram við aðra eins og þú vilt að komið sé fram við þig.
Svo var stelpunum raðað í herbergi.
Eftir að búið var að koma sér fyrir fengu stelpurnar jógúrtköku og ávexti. Vá, hvað það var gott! 😋
Eftir kaffið var komið að frjálsa tímanum. Vá, það var svo margt í boði! Brennó, andlitsmálun, föndur, íþróttakeppni og svo vinaarmbönd í setustofunni. Þær eru svo duglegar að taka þátt og vildu helst gera allt á sama tíma. Það var líka gaman að sjá hversu stór hópur langaði að fara út að leika, enda er fallegi skógurinn okkar einstaklega skemmtilegur í svona dásamlega góðu veðri. 🌳☀️
Í kvöldmat var lasagne – namm namm! 😋
Þá var komið að kvöldvöku og það var hæfileikasýning þar sem stelpurnar gátu skráð sig og sýnt okkur hinum hin ýmsu atriði. Það var svo gaman að sjá hvað við erum með hæfileikaríkan hóp af stelpum! ❤️
Stelpurnar fóru í náttföt og áttu kósýstund og voru tilbúnar að undirbúa sig fyrir háttinn þegar foringjarnir komu og sungu: „Hæ hó, jibbí jei, það er komið náttfatapartý!“ 🎉
Það sló heldur betur í gegn og stelpurnar enduðu svo á að fá ís. 🍦
Stelpurnar fengu síðan að fara út að læk að bursta tennur, en það er skemmtileg og gömul hefð hjá okkur. Stelpunum fannst það bæði skrítið og skemmtilegt 😂 Það var samt gaman að sjá hversu stór hópur fór.
Þær áttu svo rólega stund inni á herbergjunum sínum með bænakonunum sínum. Flestar voru sofnaðar klukkan 11. ❤️