
Þá er þessum síðasta flokki sumarsins lokið. Ég sit hér í rútunni á leiðinni heim og hlusta á börnin í kringum mig raula Ölverlög og rifja upp skemmtileg atvik ig góðar minningar. Sumar sitja hjá nýjum vinkonum og aðrar eru að skiptast á símanúmerum. Allt er eins og það á að vera.
Veisludagurinn var í gær. Hann hófst með hefðbundinni morgundagsins og eftir morgunstund fóru allar stelpurnar í hinn æsispennandi foringjabrennó þar sem sigurliðið í brennókeppninni keppir við foringjana. Þær vinna auðvitað aldrei – það má ekki gerast… en það má reyna 😉 og það er alltaf mikið stuð og gaman í foringjabrennó.
Í hádeginu var ávaxtasúrmjólk og brauð og eftir matinn fóru herbergin út í Ölversleika. Þá er keppt í ýmsum greinum eins og ljóðagerð, sippi, hlaupi, broskeppni og fleiru. Þær sem vildu fengu svo að klára að mála tröllaleirliataverkin sín.
Í kaffinu var kaka og snúðar og dagskráin eftir kaffi var hæfileikakeppni, pottur og undirbúningur veislukvölds. Allar fóru í sparifötin og fengu fléttur til að vera tilbúnar fyrir kvölddagskrána.
Um kvöldmat var svo blásið í pítsu partý og að því loknu tók við löng kvöldvaka með geggjuðum foringjaleikritum. Það er alltaf mest gaman þegar foringjarnir bregða á leik og mikið hlegið í kvöldvökusalnum.
Dagurinn í dag hefur svo litast svolítið af pökkun og heimferðareftirvæntingu. Engu að síður náðum við að hafa morgunstund og bjóða upp á skartgripagerð og gaga-bolta. Sumar vildu fá að klára myndina frá kósýkvöldinu og fengu það.
Eftir pastasalat í hádeginu fór fram lokastund með verðlaunaafhendingu og frumsýningu á skemmtilegu myndbandi þar sem við rifjuðum upp það helsta í flokknum.
Mikið hefur verið gaman og dýrmætt að fá að eyða þessum dögum í Ölveri með skemmtilegum stelpum og frábærum foringjum. Ég þakka kærlega fyrir traustið og fyrir minningarnar.
Ásta Sóllilja, forstöðukona.