
12. ágúst er liðinn. Almyrkvinn kom og fór og hér sást ekki til sólar. Það skyggði þó lítið á stemmninguna hér í Ölveri og við áttum magnþungna stund í náttúrunni á þessum fallega stað.
Dagurinn hófst með hefðbundinni dagskrá – morgunverði, fánahyllingu, tiltekt og morgunstund. Eftir morgunstundina hófst hin klassíska Top-Model keppni milli herbergi. Þá fá öll herbergi nokkra hluti í efnivið (t.d. kaffipoka, bandspotta, blöð, plastpoka o.s.fv.), velja eitt módel úr herberginu og skreyta það með þessum hlutum, sem og öllu öðru sem ímyndunaraflið leyfir. Svo er „tískusýning“ frrammi fyrir dómurum (foringjar í dulargervi). Þemað í gær var að sjálfsögðu himininn og himintunglin og módelin voru hreint út strax stórkostleg á sýningunni. Skoðið endilega myndirnar!
Í hádegismat var kornflex-kjúklingur með kartöflum og allar borðuðu mjög vel. Eftir hádegið ákváðum við að hafa innidagskrá til að bleyta ekki alla frá toppi til táar fyrir útiveru seinnipartsins. Við buðum upp á nokkrar listastöðvar þar sem hægt var að vinna með trölladeig. gera skartgripi, útbúa sólmyrkvamyndir, skella sér í Just Dance og gera vinabönd.
Upp úr 15.00 hófst svo sólmyrkvafjörið! – Vindáshlíð mætti á svæðið til okkar með rúmlega 80 stelpur og 17 starfsmenn. Allir klæddu sig vel eftir veðrinu og samveran hófst á rúmlega 120 barna hópleikjum í lautinni okkar. Kaffitíminn var tekinn úti, smákökur og skinkuhorn fyrir alla, og svo fórum við í heimsins stærsta tuskuleik! Tuskuleikur er sumarbúðaútgáfa af hefðbundnum eltingaleik. Þar elta foringjar börn um allan skóg á meðan börnin reyna að fá frið til að leysa ýmsar þrautir. Þið getið rétt ímyndað ykkur stuðið með 120 börn og um 15 starfsmenn hlaupandi um.
Þegar líða tók að almyrkva kom allur hópurinn sér fyrir í brekkunni okkar í Ölveri og þar fylgdumst við með hvernig myrkrið lagðist yfir allt í stutta stund. Börnin steinþögðu og voru augljóslega mjög spennt fyrir því sem koma skyldi. Stundin var mjög kraftmikil þrátt fyrir að ekkert sæist til sólarinnar vegna skýjahulu.
Eftir almyrkvann settum við í gang pylsugrill, hoppikastala og gaga-bolta og nutum síðustu stundanna saman í frjálsum leik áður en Hlíðarmeyjar pökkuðu sér saman og héldu aftur upp í Vindáshlíð.
Við ákváðum svo að viðeigandi væri á þessum degi að leyfa hátíðinni að halda svolítið áfram. Eftir hefðbundna kvöldvöku með skemmtiatriðum í boði Lindarvers var stelpunum boðið í kaffihúsastemmningu í matsalnum þar sem þær gæddu sér á bæði kakó og vöfflum við kertaljós. Potturinn var svo opnaður, borðspil tekin fram og m.a.s. settum við í gang bíómynd í kvöldvökusalnum. Þetta varð notalegt og eftirminnilegt kvöld – sem var viðeigandi fyrir þennan spennandi dag.
Við starfsfólkið erum enn að jafna okkur á hversu frábærlega allt gekk með þennan stóra hóp og ekki síst á því hversu vel tókst til að búa til eftirminnilega stund í kringum þennan viðburð. Við erum mjög þakklát fyrir að þið treystuð okkur fyrir börnunum á þessum degi og vonum að þau hafi notið jafnvel og við.
Ég hvet ykkur til að skoða myndirnar úr flokknum hér.
Myndir af gærdeginum má líka sjá á myndasíðu Vindáshlíðar hér.