Sirkus og Almyrkvinn – Vindó

Jæja kominn tími à frèttir af okkur.

Á þriðjudaginn opnaði sirkus Vindò, þar sem foringjar vöktu stelpurnar klæddar sem trúðar, ljòn og fleiri furðuverur sem finnast í sirkus. Í biblíulestri héldum við áfram að tala um kærleikann og virðingu, stelpurnar eru svo duglegar að hlusta. Fram fóru brennóleikir og skemmtilegar íþróttakeppnir. Í útiveru dagsins var farið í göngu að Brúðarslæðu, þar sem þær gátu vaðað og leikið sér. Í kaffinu fengu stelpurnar volga eplaköku og kanillengjur. Og í kvöldmat voru kjúklingaborgarar. Um kvöldið fór fram Vindó got talent, sem er hæfileikakeppni milli stelpnanna, þar sem þær sýna sýnar bestu hliðar, hér eru miklir hæfileikar út um allt.
Við vorum svo allar orðnar spenntar fyrir næsta degi.

Loksins kom að ævintýradeginum, ALMYRKVANUM. Eftir að hafa fengið fræðslu um hvernig sòlmyrkvi verður og fræðslu um heimingeiminn frá forstöðukonu, fóru fram síðustu brennókeppnir fyrir undanúrslitin. Eftir það komu í ljós hvaða 4 herbergi munu keppa um efstu sætin. Þessu er tekið mjög alvarlega hér af mörgum.

Í hádegismat var boðið upp á skyr og nýbakað brauð. Við lögðum af Stað með rútu í Ölver eftir hádegið og hittum þar hóp af stelpum og starfsfòlki, við vorum samtals um 165 stelpur samankomnar til að upplifa þennan einstaka viðburð. Við byrjuðum á að borða saman kaffi, við bökuðum amerískar súkkulaðibitakökur og þær í Ölver bökuðu skinkuhorn. Eftir kaffið fór fram skemmtilegur eltingaleikur í rigningunni, getið ýmindað ykkur gleðina að fylgjast með 160 börnum og starfsfòlki hlaupandi um náttúruna í leik, hlægjandi og brosandi. Síðan upplifðum við myrkrið og allar 165 stelpurnar þögðu í 10mín og nutu, þetta var alveg sturlað. Síðan grilluðum við pulsur og héldum síðan heim aftur í Hlíðina. Magnaður dagur og við starfsfòlkið heppið að fá að upplifa þetta með flottu stelpunum ykkar 🙂

Framundan er veisludagur, skemmtilegasti dagur vikunnar 🙂

kveðjur ùr Hlìðinni fríðu, Marín forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum