9. flokkur – Listaflokkur – Dagur 2

Annar dagurinn okkar í þessum listaflokki var alveg frábær. Veðrið lék aftur við okkur og þvert á veðurspár lét sólin meira að segja sjá sig.

Stelpurnar voru vaktar kl. 09 eins og venja er í Ölveri og fengu þá val um morgunkorn eða hafragraut í morgunmat. Síðan tók við fánahylling og tiltekt í herbergjunum, enda mikil stemmning í hegðunar- og snyrtimennskukeppni herbergja í þessum flokki.

Á morgunstund ræddum við um sköpunina og hvernig Guð birtist okkur bæði í hinu stór en einnig í því smáa. Stelpurnar voru hvattar til að nýta daginn í að taka eftir því fallega og fullkomna í kringum sig. Eftir morgunstundina tókum við fram efnivið í kórónur og allar stelpurnar gerðu sér sólmyrkvakórónu fyrir sólmyrkvapartýið okkar í kvöld.

Í hádegismatinn var grjónagrautur og brauð og þegar stelpurnar höfðu nært sig vel fengum við góðan gest í heimsókn. Til okkar kom Katrín Ýr Erlingsdóttir, hæfileikabúnt og nemi í söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Dementz, og hún var með tveggja tíma söngleikjavinnustofu fyrir allan hópinn. Allar æfðu dans- og söng við lag úr söngleiknum Annie og ótrúlega gaman að sjá hvað þær voru duglegar að taka þátt og jafnvel brjótast aðeins út úr þægindahringnum.

Eftir kaffi héldum við æsispennandi brennómót og buðum upp á hoppikastala og gaga-bolta í góða veðrinu áður en allir fengu grillaða hamborgara.

Kvöldvakan var löng og skemmtileg með atriðum í umsjá Hlíðarvers og Lindarvers og dagurinn endaði með kósý kvöldkaffi og notalegri stund með bænakonum inni á herbergjum. Heimþráin hélt sig víðsfjarri og allar sofnuðu vært.

Í dag er spennandi dagur. Allir eru auðvitað með hugann við almyrkvann og undirbúningur í hámarki. Við eigum von á góðum gestum frá Vindáshlíð og stefnum á gott og gríðarlega fjölmennt sólmyrkvapartý. Veðrið er miklu betra en við þorðum að vona verður spennandi að segja ykkur frá upplifuninni í frétt morgundagsins.

Okkur skilst að frétt gærdagsins hafi birst seint vegna einhverra tæknilegra örðugleika og biðjumst velvirðingar á því.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum