Þá er komið að veilsudegi, stelpurnar vöknuðu við ljúfa tóna áður en var haldið í hefðbundna morgundagskrá.
Í hádegismat var boðið uppá pastasalat sem rann vel niður og svo var föndrað kórónur og fleira skemmtilegt fyrir gleðigöngu um svæðið.
Í kaffitíma var svo jógúrtkaka og kanillengjur áður en stelpurnar fóru allar í sturtu og að græja sig fyrir skemmtilegt veilsukvöld.
Á meðan sumar voru að græja isg var einnig boðið uppá gaga bolta og íþróttakeppnir.
Og svo hófst veislukvöld, pizza í matinn og allar sáttar.
Foringjarnir skemmtu stelpunum á kvöldvöku með fullt af frábærum leikritum og leikjum.
Þetta kvöldið var síðasta kvöldið okkar saman svo allar stelpurnar fengu lengri tíma með sinni bænakonu en venjulega og var mikið fjör og margar tilfinningar hjá þeim.
Ég minni á að það eru myndir á myndasíðunni okkar og detta þær seinustu inn í dag.
Rútan kemur á Holtaveginn um 15 leitið í dag.
Takk kærlega fyrir að treysta okkur fyrir frábæru stelpunum ykkar. Þær eru allar sem ein skemmtilegar, flottar og duglegar og erum við mjög þakklátar fyrir að hafa kynnst þeim öllum.
Bestu Kveðjur úr Ölveri,
Lilja Maren, forstöðukona.