8. Flokkur – Dagur 4

Þennan morguninn vöknuðu allar hressar, kátar og til í daginn.  Það var haldið í morgunmat, biblíulestur og brennó.

Í hádegismat fengum við grænmetisbuff og kúskús og veitti ekki af orkunni þar sem við vorum á leiðinni í hina frægu Ölversleika. Þar var keppt í ýmsum þrautum eins og lautarhlaupi, rúsínuspýtti, sippi og fullt fleira.

Kaffitíminn sló vel í gegn enda hafði bakarinn okkar galdrað fram súkkulaðiköku og pizzasnúðar.

Því næst var komið að hæfileikakeppni, það voru mörg flott og skemmtileg atriði en fengum við í heimsókn frábæra dómara.

Í kvöldmat var hakk og spagettí og voru allar topp sáttar með það.

Svo var haldið til kvöldvöku þar sem var mikið sungið og voru sýnd ýmis leikrit við mikil fagnaðarlæti. Stelpurnar héldu svo allar í kvöldkaffi en þá voru aðstoðarforingjarnir úti með tónlist í pottinum og buðu öllum með sér í pottapartý.

Eftir mikla gleði í pottinum var haldið inn í matsal þar sem foringjarnir sýndu leikrit á mepan stelpurnar fengu sér ís.

Svo héldu allar í háttinn eftir viðburðarríkan dag.

Bestu kveðjur úr Ölveri,

Lilja Maren, forstoðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum