8. Flokkur – Dagur 3

Á þriðja degi héldum við uppá Hrekkjavöku í ágúst.

Við sváfum aðeins lengur og vöknuðum svo við hrekkjavöku tónlist, en bara hress og skemmtileg lög.

Eftir hefðbundna morgundagskrá gæddum við okkur á grjónagraut sem rann mjög ljúft niður.

Næst var haldið í alvöru hrekkjavökupartý þar sem stelpunum var boðið uppá andlitsmálningu og svo var farið í ýmsa leiki.

Það er engin hrekkjavaka nema að maður fari og geri „grikk eða gott“ og fái nammi, þannig allar stelpurnar fóru saman í göngutúr og fundu á leið sinni tvo foringja í búningum sem gáfu þeim nammi.

Í kaffi var boðið uppá smákökur með glassúr sem leit út eins og kóngulóavefur og popp að því við fengum okkur kaffi í kvöldvökusalnum og horfðum á bíómyndina Hocus Pocus.

Þegar allar voru búnar að borða var boðið uppá að fara í pottinn og sturtu.

Í kvöldmat fengum við kjötbollur og kartöfllumús áður en við fórum á kvöldvöku. Kvöldvakan okkar var trufluð af tollverði sem gaf öllum blöð og liti til þess að búa sér til vegabréf þannig að þær kæmust í gegnum draugahúsið og inní matsal. Stelpurnar voru leiddar í gegnum draugahúsið þar sem þær hittu norn, vampíru, trúð og kisu, þær enduðu svo í matsalnum þar sem var verið að spila bingó þangað til allar voru komnar.

Í kvöldkaffi var boðið uppá skrímslavöfflur með jarðaberjablóði (sulta) og bráðnuðum draugum (rjómi) og nornaseiði að drekka.

Það hefur verið nóg að gera og mikið stuð.

Einnig minni ég á mynda síðuna okkar þar sem við erum duglegar að deila inn myndum af fjörinu.

Ölverskveðjur,

Lilja Maren, forstaða.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum