8. Flokkur – Dagur 2

Stelpurnar vöknuðu við skemmtilega tónlist og héldu í morgunmat og svo fánahyllingu eins og við gerum alla morgna hérna í Ölveri.

Á biblíulestri lærðu stelpurnar um sögu Ölvers sem er mjög áhugaverð þótt ég segi sjálf frá. Kristrún Ólafsdóttir stofnandi sumarbúðianna var mikill frumkvöðull og flott kona sem lagði allt sitt fram til þess að við gætum komið hér saman.

Í hádegismat fengum við fiskibollur með hrísgrjónum og karrýsósu til þess að næra okkur fyrir komandi dagskrá.

Því það var komið að Top Model og í þetta sinn var þemað sveitinn. Stelpurnar höfðu mikið gaman af því að leyfa hugmyndarfluginu að ráða. Hvert herbergi hannaði á eitt model og enduaði leikurinn á tískusýningu með frábærum dómurum.

Í kaffi fengum við Ölversbollur og Sjónvarpsköku áður en við héldum í meira fjör.

Næst var boðið uppá alls konar skemmtilegar stöðvar, allar stelpurnar bjuggu til brjóstsykur og tie dye boli, þær sem vildu fóru svo í pottinn eða sturtu, á meðan þær voru ekki að gera neitt af þessu var boðið uppá leiki í kvöldvökusalnum okkar.

Kvöldmaturinn sló vel í gegn, kornflex kjúklingur með kartöflum og fóru allar sáttar frá borði.

Að lokinni kvöldvöku komu persónur úr bíómyndinni Vaiana og kynntu fyrir stelpunum ævintýraleik. Þar þurftu þær að finna nokkrar persónur til þess að komast á lokastöð án þess að „kókoshneturnar“ myndu ná þeim.

Það var mikill ærslagangur og fórum við frekar seint að sofa en það var komin ró á húsið kl 1 og sváfu allar vel.

Annar frábær dagur hjá okkur hérna á þessum yndislega stað.

Bestu Kveðjur úr Ölveri,

Lilja Maren, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum