Dagur 2

Góðan og blessaðan daginn!

Gleðin heldur áfram hér í Vindáshlíð!

Stelpurnar voru vaktar klukkan 9 í morgun og hófu daginn á góðum morgunmat. Að honum loknum var biblíulestur þar sem ég sagði þeim söguna um talenturnar. Í kjölfarið spunnust skemmtilegar umræður um hæfileika og það er óhætt að segja að stelpurnar ykkar séu einstaklega hæfileikaríkar.

Eftir biblíulesturinn tók við fjölbreytt dagskrá með brennókeppni, föndri, íþróttakeppnum og armbandagerð í setustofunni. Í hádeginu var boðið upp á plokkfisk sem sló heldur betur í gegn.

Seinnipartinn var gengið að Pokafossi þar sem foringjarnir sögðu stelpunum sögur af fossinum. Í kaffinu var svo boðið upp á sjónvarpsköku og nýbakaðar brauðbollur. Messí bakarinn okkar heldur áfram að vera í miklu uppáhaldi hjá stelpunum.

Það hefur verið mikið líf utandyra í dag. Stelpurnar hafa leikið sér í aparólunni, á fótboltavellinum og í skóginum og notið þess að vera saman. Um kvöldið galdraði Karen ráðskona fram geggjuðum hamborgurum sem vöktu mikla lukku.

Á kvöldvökunni var komið að næstu herbergjum að sýna atriði og auðvitað sungum við líka skemmtilegu Vindáshlíðarlögin okkar.

Eftir kvöldvökuna fengu stelpurnar að bursta tennurnar í læknum, sem er gömul og skemmtileg hefð hér í Vindáshlíð. Þegar þær voru síðan komnar upp í herbergi og héldu að dagurinn væri á enda gerðist eitthvað óvænt. Foringjarnir mættu skyndilega í náttfötum, með málningu í framan og klósettpappír í hárinu og kölluðu: „HÆ HÓ JIBBÍ JEI, ÞAÐ ER KOMIÐ NÁTTFATAPARTÝ!“

Það vakti gríðarlega lukku! Við dönsuðum, fórum í alls konar skemmtilega dansleiki, foringjarnir sýndu atriði og að sjálfsögðu endaði kvöldið á ís.

Annar dásamlegur dagur að baki hér í Vindáshlíð. Við hlökkum til að segja ykkur frá ævintýrum morgundagsins!

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum