Ævintýraflokkur III – Önnur frétt

Skógarmenn

Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.

Til hamingju Skógarmenn!

Dagskráin í fullum gangi

Það er sannkallað líf og fjör í Vatnaskógi þessa dagana, bátarnir eru ávalt vinsælir, smíðaverkstæðið iðar af sköpunargleði og íþróttahúsið nýtur mikillar aðsóknar. Gaman er að sjá hversu vel drengir nýta sér fjölbreyttu dagskrána sem boðið er upp á.

Þátttakendur fengu að taka þátt í hinu sívinsæla Vatnafjöri, þar sem tuðran var fest aftan í mótorbát og brunað um Eyrarvatn. Þetta er ávallt einn vinsælasti dagskrárliður flokksins og biðu margir spenntir eftir að komast á vatnið. Seinna verður svo komið að búbblubolta á knattspyrnuvellinum. Þar munu þátttakendur takast á í skemmtilegum leik þar sem bæði hlátur og keppnisskap fá að njóta sín. Þetta verður allt hluti af fjölbreyttri og viðburðaríkri dagskrá flokksins, ásamt hefðbundnum dagskrárliðum.
Skemmtilegt er að minnast á veiðina í flokknum en hingað til hafa veiðst 10 fiskar. Margir öflugir veiðimenn eru í flokknum og ef fram heldur sem horfir gætum við slegið einhverskonar Skógarmet í veiði á fisk, sjáum til.

Rigningin er blaut og hún er mætt en drengirnir láta það ekkert á sig fá. Framundan í dag og næstu daga má gera ráð fyrir eitthvað meira af rigningu og óhagstæðri vindátt. Við höldum að sjálfsögðu áfram með okkar útidagskrá.

Matseðill

Miðvikudagurimm 5. ágúst
Morgunmatur – Morgunkorn, hafragrautur og súrmjólk
Hádegismatur – Lambapottréttur, stappa og salat
Kaffitími – Pizzasnúðar og jógúrtkaka með súkkulaðibitum
Kvöldmatur – Pylsupasta með sósu og salati
Kvöldkaffi – Ávaxtabakkar

Fimmtudagurinn 6. ágúst
Morgunmatur – Rjómalagað kakó, nýbakað brauð og allskonar álegg
Hádegismatur – Kjötréttur, kartöflur, salat og sósa
Kaffitími – Kaka, bananabrauð og smákaka
Kvöldmatur – Súpa og nýbakað brauð
Kvöldkaffi – Kex og mjólk

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum