Góðan og blessaðan veisludaginn!
Haldiði ekki að við höfum vaknað í sól og blíðu í Ölveri þennan veisludaginn. Það var því um að gera að nýta vel góða veðrið og var morgunstundin með forstöðukonu niðri í laut. Stelpurnar fengu að heyra dæmisöguna um dýrmætu perluna en það er svo mikilvægt að stelpurnar fái að heyra að þær eru óendanlega dýrmætar perlur, hver og ein. Herbergin týndust svo uppá pall hvert af öðru þar sem þær fengu að grilla sykurpúða og gera sér gómsætar „smores“ kexsamlokur.
Í hádeginu var kalt pastasalat sem féll vel í kramið. Þar sem veðrið hafði aðeins verið að stríða okkur hafði lítið farið fyrir brennókeppni fram að þessu. Stelpunum var því skipt í lið og allir brennóleikir flokksins leiknir á brennóvellinum eftir hádegi. Það var brennóliðið „Neymar“ sem bar sigur úr bítum en liðið „Haaland“ veitti harða keppni í úrslitaleik.
Eftir kaffi var að mestu frjáls útivera sem allar þáðu með þökkum. Rólan, aparólan og gaga-völlurinn voru vel nýtt auk þess sen margar völdu að sóla sig á pallinum með bók í hönd. Það þurftu svo allar stelpur að fara í sturtu eða pott og gera sig fínar fyrir veislukvöld. Þær hjálpuðust að við finna réttu dressin og gera hver aðra svo flottar og allar sem vildu fengu fastar fléttur.
Á veislukvöldi stokkum við upp matsalnum sem er fallega skreyttur af foringjunum. Þær sitja saman við borð eins og á fínum veitingastað og láta þjóna sér til borðs. Lilja ráðskona bauð uppá gómsætar pizzur og djús og borðuðu allar á sig gat. Kvöldvaka á veislukvöldi er líka alltaf mikið tilhlökkunarefni en þá skella foringjar sér í hina ýmsu búninga og leika fyrir stelpurnar leikrit. Þær hlógu þar til þeim var illt í mallanum enda vorum við einstaklega heppnar með frábæra foringja og aðstoðarforingja í þessum flokki. Það var sparikvöldkaffi með ávöxtum og rice crispiekökum áður en allar fóru að hátta, pissa og bursta.
Mikið erum við búnar að eiga skemmtilegan tíma saman í Ölveri.
Takk fyrir yndislegan veisludag.
Stella Rún, ráðskona