7. flokkur – ævintýraflokkur – dagur 3

Góðan daginn og gleðileg jól!

Á þriðja degi vöknuðu stelpurnar við jólatónlist og með glaðning í skó fyrir utan herbergið. Jólin voru mætt í Ölver enda engin leið að vita hvort það væri sumar, vetur, vor eða haust í þessum rigningarsudda 🙂 Piparkökuilmur fyllti húsið og foringjar höfðu sett upp léttar jólaskreytingar.

Morgunstundin þessu sinni var helguð þakklætinu og hjálpuðu stelpurnar undirritaðri að fylla þakklætiskörfuna okkar. Það reyndist þeim ferlega létt enda margs að þakka. Helst voru þær þakklátar fyrir góða fjölskyldu og vini, það að fá að búa á Íslandi, Ölver og góða matinn sem Lilja ráðskona eldar fyrir þær. Eins voru þær þakklátar fyrir rúmin sín, ís, trén, fimleika og svo ótalmargt annað.

Í hádeginu var boðið uppá grjónagraut, „ris á la mande“, brauð og álegg. Dagurinn hélt svo áfram með jólaívafi og fengu stelpurnar m.a. að mála piparkökur, gera jólakort, fara í jólabaðið í pottinum og hitta ævintýralegar jólafurðuskepnur á ævintýragangi. Var þar m.a. Grýla mætt til að stríða þeim ásamt Trölla sem var heldur ósáttur við allt þetta jólastand í júlí.

Lilja bauð svo uppá hamborgara (-hrygg) með öllu og picnic-strá sem stelpurnar gúffuðu í sig með bestu lyst. Fjallaver og Lindaver sáu um skemmtiatriði á kvöldvökunni í þetta sinn en eftir kvöldvöku fóru allar inn í herbergið sitt að hátta. Þær komu svo upp í kvöldvökusal með sængur og bangsa og horfðu á jólamynd. Að sjálfsögðu var boðið uppá popp með bíóinu auk þess sem þær máttu gæða sér á piparkökunum sínum frá því fyrr um daginn.

Vægast sagt lúnar stelpur sem lögðu höfuð á kodda þetta kvöldið.

Takk fyrir yndisleg Ölvers-jól <3

Stella Rún, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum