Veisludagur rann í hlað og fengu stelpurnar coco pops í morgunmat til að fagna því að vera orðnar Hlíðarmeyjar en þeim merka áfanga ná stelpur sem sofa þrjár nætur í röð í Vindáshlíð.
Veðrið var frábært og fóru stelpurnar í göngu að Brúðarslæðu og þar fengu þær að vaða. Það vakti mikla lukku. Eftir kaffi var vinagangur þar sem stelpurnar buðu upp á alls konar skemmtun í sínu herbergi og bænakonur og stelpur fengu að kíkja í heimsókn. Dæmi um það sem var í boði var naglalökkun, hárgreiðsla, axlanudd og svo var ein stöð þar sem verið var að kenna sænsk orð.
Í kvöldmat var pizza og búið var að skreyta salinn og var mikið stuð hjá stelpunum. Þær fengu viðurkenningar fyrir keppnir sem þær tóku þátt í og svo var krýnd íþróttadrottning. Veislukvöldvakan var bráðskemmtileg og nú stigu foringjar á svið og léku alls konar leikrit.
Stelpurnar fóru glaðar að sofa eftir langan en góðan dag.
Á morgun er brottfarardagur og þá höldum við heim á leið eftir frábæra dvöl í Vindáshlíð.
Kærar kveðjur Ásta og Pálína