9. flokkur – Dagur 3

Dagurinn í dag var ansi góður, veðrið lék við okkur og meira að segja sólin lét aðeins sjá sig.

Fyrir hádegi var brennó, íþróttakeppnir og vinabandagerð. Margar stúlknanna eyddu tímanum úti í skógi í góða veðrinu. Í hádegismatinn var dýrindis kjúklingasúpa með snakki og osti og tóku flestar stelpurnar vel til matar síns sem var eins gott því eftir hádegismat fóru þær í göngu niður að réttum. Þar fóru þær í skemmtilega leiki og meðal annars leik þar sem þeim er smalað í dilka. Sá leikur vakti mikla lukku hjá stelpunum.

Það var lasagne í kvöldmatinn og kvöldvakan var á sínum stað með söng, leikritum og almennri gleði.
Stelpurnar fóru þreyttar að sofa eftir langan en góðan dag.

Hér er linkur fyrir myndir úr flokknum : https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/collections/72157629303373157

kær kveðja Ásta og Pálína

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum