7. flokkur – ævintýraflokkur – dagur 2

Og þá var það blautt!

Á degi 2 í ævintýraflokki var það rigningin og rokið sem vakti mannskapinn. Verður undirrituð að taka það fram að hún hefur aldrei verið á svæðinu í viðlíka vatnsveðri en það fólust ævintýri í því, sem betur fer 🙂

Stelpurnar fengu fræðslu um sögu Ölvers sem er orðin talsvert löng og er merkileg fyrir margar sakir. Ekki síst fyrir hlutverk Kristrúnar Ólafsdóttur, móður Ölvers en án hennar væru engar sumarbúðir fyrir stelpur hér. Það kom sér líka vel að leggja nokkrar staðreyndir á minnið fyrir karamelluspurningakeppnina seinna um daginn. Lilja ráðskona bauð uppá grjónagraut í hádeginu sem féll vel í kramið.

Eftir hádegismat var komið að hinum margrómuðu Ölversleikum sem við kusum að kalla Blautversleika í ár. Stelpurnar settu allar undir sig hausinn og héldu út í rigninguna að leysa hinar ýmsu þrautir auk þess að keppa í ýmiss konar hreysti. Má þar nefna stígvélaspark, keppni um breiðasta brosið og seríos-gisk. Það var svo ekkert annað í stöðunni en að renna sér í pollagöllunum á slip-and-slide brautinni og var það extra skemmtilegt þegar búið var að setja svolítið af sápu á brautina. Í kaffinu fengu stelpurnar Ölversbollur og súkkulaðiköku.

Þegar þær höfðu skolað niður súkkulaðikökunni var komið að næsta ævintýralega dagskrárlið en þær fengu að renna sér meira á slip-and-slide brautinni. Nú voru þær á sundfötunum – litla fjörið! Þær sem völdu að gera það skoluðu svo af sér í sturtunum áður en þær dýfðu sér í heita pottinn. Restin var uppi í kvöldvökusal í Just Dance og vinabandagerð.

Í kvöldmatinn var hakk og spaghetti og átti Lilja ráðskona ekki orð yfir það hversu vel þær borðuðu. Það kláraðist tvöfaldur skammtur af spaghetti miðað við ráðleggingar 🙂 Skógarver sá um skemmtiatriði á kvöldvökunni og stóðu þær sig frábærlega. Léku leikrit og stjórnuðu leikjum. Þegar stelpurnar héldu svo að það ætti að fara að koma þeim í ró fylltist húsið af dúndrandi dansmúsík. Leiðtogarnir leiddu þær þá í hressandi náttfatapartý sem lét enga ósvikna.

Það tók talsvert styttri tíma að svæfa þær þetta kvöldið enda pakkaður dagur af skemmtilegri samveru að baki.

Takk fyrir annan yndislegan Ölversdag!

Stella Rún, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum