9. flokkur – dagur 2

Stelpurnar vöknuðu hressar og kátar í morgun. Nánast allar voru vaknaðar áður en þær voru vaktar – svo spenntar fyrir deginum. Þær tóku hraustlega til matar síns í morgunmatnum, hylltu fánann með glæsibrag og skelltu sér svo niður í biblíulestur. Þar sköpuðust góðar umræður um virðingu og hvernig á að koma fallega fram við alla eftir að hafa heyrt söguna um miskunnsama Samverjann. Í hádeginu var kjúklingaborgari og eftir þá máltíð fóru allar út í íþróttahús í Vindáshlíð’s Next Top Model leik þar sem þær hönnuðu kjóla úr ruslapokum og svo var haldin tískusýning. Eftir að allar stelpurnar voru háttaðar voru foringjarnir búnir að henda sér í náttföt, mála sig í framan og setja klósettpappír í hárið og það þýðir bara eitt! NÁTTFATAPARTÝ! Þá var dansað uppi á borðum og farið í leiki og svo fengu allar stelpurnar ís. Góður dagur að baki.

Kær kveðja Ásta og Pálína

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum