7. flokkur – ævintýraflokkur – dagur 1

Forstöðukona biðst innilega afsökunar á fréttaleysi síðustu daga en það hefur verið talsvert annríki eins og verða vill þegar margar flottar stelpur koma saman 🙂

Það voru 37 hressar og kátar ævintýrastelpur mættar í Ölver á degi 1 í ævintýraflokki. Herdís foringi tók vel á móti þeim og fór yfir reglur staðarins áður en stelpunum var skipað í herbergi. Þær fengu aðstoð við að koma sér fyrir og gera huggulegt í herbergjunum áður en hringt var í hádegismatinn, skyr og pizzabrauð.

Eftir hádegismat skelltu allar sér í sín öflugustu hlífðarföt og héldu út í rigninguna að kynnast staðháttum í Ölveri. Leiðtogarnir leiddu þær svo í skemmtilegum samhristingsleikjum og sprelli á frekar blautum fótboltavellinum. Það var því kærkomið þegar Lilja ráðskona hringdi í kaffitímann og bauð uppá heitt kakó, bananabrauð og karamellulengjur. Stelpurnar fengu svo val um frjálsa útiveru, pottaferð eða föndur og dund í matsalnum.

Í kvöldmatinn fengu þær kjötbollur með brúnni sósu sem runnu ljúflega niður. Þá var komið að kvöldvöku með leikjum og söng áður en þær fóru í bænakonuleit. Hvert herbergi fær tvær bænakonur sem eru stelpunum sérstaklega innan handar auk þess að sjá um að koma þeim í ró fyrir svefninn og biðja með þeim kvöldbænir. Í þetta sinn var stelpunum sagt að leita að bænakonunum innan girðingarmarka og hlupu þær spenntar út í rigninguna. Eitthvað stóð á því að finna bænakonurnar sem höfðu allar falið sig INNI í herbergjunum þeirra. Þóttu foringjum og forstöðukonu þær ægilega fyndnar á þessum tímapunkti.

Takk fyrir yndislegan Ölversdag <3

Það var viðbúið að spenningur myndi mögulega seinka háttatíma eitthvað aðeins en að lokum datt á dúnalogn fyrir utan hljóðið í rigningunni sem ekkert lát var á.

Stella Rún, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum