
Nú er viðburðarríkum og skemmtilegum flokki í Vatnaskógi senn að ljúka. Síðasta heila daginn köllum við veisludag og fór hann vel fram þrátt fyrir töluverða súld. Lið foringja keppti við úrvalslið drengja í knattspyrnu og höfðu nauman sigur 5v4. Það er hefð á veisludegi að keppt er í Brekkuhlaupi, þar sem hlaupið er upp að hliði og aftur til baka, um 2 km leið. Eins og nafnið bendir til hlaupið upp brekkuna og svo niður á leið til baka. Þá var íþróttahúsið að sjálfsögðu opið auk báta og smíðaverkstæðis og ýmissa útleikja og hjólabílarallý.
Veislukvöldverður hófst kl. 18:00 þar sem boðið var upp á snitsel, kartöflur, salat, gular og grænar baunir og brúna sósu og rann máltíðin vel ofan í drengina. Þaðan var haldið á veislukvöldvöku þar sem veitt voru verðlaun fyrir hin ýmsu afrek í flokknum, keppt til úrslita í Biblíuspurningakeppninni auk ýmissa skemmtiatriða eins og leikrit og hið umtalaða Sjónvarp Lindarrjóður en ásamt því var mikið sungið og trallað. Þá sungu líka foringjarnir nokkur skonrokkslög sem vöktu mikla lukku.
Eftir veislukvöldvöku var svo farið beint að horfa á úrslitaleik HM og voru drengirnir mjög spenntir fyrir því. En ásamt því var íþróttahúsið opið fyrir þá sem ekki vildu horfa á leikinn.
Það voru þreyttir drengir sem fóru að sofa og þeir síðustu sofnuðu um hálf tólf leitið.
Eftir að drengirnir hafa verið vaktir þá fara þeir í sinn síðasta morgunnverð þar sem plan dagsins verður auglýst. Undiritaður hélt að sumir af foringjunum hafi verið að gera grín í honum að krummi hafði vakið þá með krunkinu sínu en eftir að hafa spurt drengina í morgunmatnum var um helmingur drengjanna sem höfðu vaknað við þennan sönglaða krumma. Eftir það pakka þeir í töskur, finna dótið sitt og tæma herbergin. Því næst halda þeir svo út í frjálsan tíma þar sem boðið verður uppá báta, útileiki, íþróttahúsið og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar.
Eftir hádegismat verður svo haldið inn í Gamla skála þar sem lokasamveran verður haldin. Þar verða auglýstir óskilamunir, drengirnir fá ís og svo verður sýnd stuttmynd sem starfsmenn Vatnaskógar koma fyrir í hinum ýmsu hlutverkum. Eftir hana verður svo kveðjustund með foringjunum sínum.
Áætluð brottför rúta frá Vatnaskógi er kl. 14:00 og gera má ráð fyrir að þær verði komnar á Holtaveg 28 kl. 15:00.
Morgunverður: Morgunkorn, mjólkurvörur og kakó
Hádegisverður: Pizza og ís í eftirrétt
Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá 8. flokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 8. flokk getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK á Íslandi, sími 588 8899.
Myndasíðan okkar er hér fyrir neðan.
Með virðingu og þökk
Ísak Jón Einarsson, forstöðumaður