
Þá er komið að veisludegi, mikið rosalega er þetta fljótt að líða. En dagurinn hófst á morgunverði, fánahyllingu og svo skemmtilegri morgunstund þar sem þær fengu að heyra um kristniboð úti í Eþíópíu og sjá myndir enda forstöðumaðurinn alin upp í Eþíópíu, þær sýndu mikinn áhuga og höfðu margar spurningar sem svaraðar voru eftir bestu getu. Eftir morgunstund var svo haldin hæfileikasýning þar sem að stelpur úr flokknum stigu á stokk og sýndu hæfileika sína. Atriðin voru æðisleg og mismunandi og fengum við að sjá söng, dans og frumsaminn leikrit. Hringt var svo beint inn í hádegismat og á boðstólnum var fiskur í raspi með lauksmjöri og salati.
Eftir hádegi var komið að staffabolta, fótboltaleikur á milli starfsfólksins og stelpnana. Allir drifu sig í íþróttaföt og beint út á völl. Fyrir leik var Íslenski þjóðsöngurinn sunginn áður en liðin komu sér í stöður, og þá hófst leikurinn, 33 stelpur á móti 7 starfsmönnum. Starfmennirnir voru ekki lengi að komast í 3 – 0 og þannig fór fyrri hálfleikurinn. Í seinni hálfleiknum tóku stelpurnar við sér og jöfnuðu leikinn 3 – 3 en starfsmennirnir ætluðu sér sko alls ekki að tapa og endaði þessi æsispennandi leikur 5 – 4 og sigur starfsmannana orðin að staðreynd eftir klukkutíma leik þar sem allir tóku virkan þátt. Eftir fótboltann var gengið beint inn í óvænt afmæliskaffi þar sem boðið var uppá vöfflur og bananabrauð með súkkulaðibitum.
Eftir kaffi voru bátarnir og vatnið opnað þar sem stelpurnar fengu að stökkva af báti út í vatnið og vakti það mikla gleði á meðal stelpnana. Einnig var þeim boðið að fara í sturtu og græja sig fyrir veislukvöldið. Allar voru komnar í fín föt og þær sem vildu fengu fléttur í hárið. Búið var að skreyta matsalinn og borðunum raðað þannig að herbergin fengu að sitja saman. Í matinn var sannkallaður veislumatur, Hólavatns hamborgarar og franskar. Eftir mat voru herbergin send út í myndatöku með bænaforingjunum sínum.
Nú var komið að veislukvölds kvöldvöku og er það stærsta og skemmtilegasta kvöldvaka vikunnar, hún var troðfull af leikritum og söngvum, sungið var hátt og mikið hlegið, kvölvakan endaði svo á því að stelpurnar hlupu niður að vatni þar sem var búið að kvekja eld og fengu þær að grilla sykurpúða og kvöldsöngur okkar hólvetninga tekinn. Einmitt þegar þær héldu að tími væri kominn til að hátta voru bátarnir enn og aftur opnaðir og fengu þær sem vildu að fara í miðnætursiglingu í dúnalogn og fallegu veðri til að ljúka síðasta heila deginum.
Föstudagur/lokadagur:
Stelpurnar fengu að sofa aðeins út áður en við tók þeim morgunmatur með öllu því helsta ásamt ristuðu brauði og heitu kakói. Næsta skref var að pakka fyrir heimferðina sem gert var með miklum trega. Morgunstundin var svo haldin í Hólakirkju sem er rúmum kílómetra frá Hólavatni og er það nánast alltaf gert á lokadegi, þar heyrðu þær um týnda sauðinn og sungu nokkur lög. Eftir morgunstundina var þeim boðið að koma og skoða sex daga gamalt folald á bænum áður en haldið var aftur á Hólavatn í pulsur og djús. Komið var svo að kveðjustund, allar fengu þær viðurkenningarskjal og sigurvegarar stjörnukeppninnar tilkynntar áður en farið var í rútuna og heim.
Við starfsfólkið viljum þakka ykkur fyrir æðislega viku og vonumst til þess að sjá ykkur aftur að ári liðnu.
Heill hellingur af myndum úr vikunni: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72177720334747739/
Bestu kveðjur, Dagbjartur Elí Forstöðumaður. 🙂