Góðan daginn,
Í gær mættu til okkar flottur hópur af stelpum, með mikla gleði. Þær voru allar með það markmið að skemmta sér. Fjörið byrjaði strax í rútunni þegar maður heyrði þær byrja að kynnast.
Þegar við mættum í Vindáshlíð, byrjuðum við að raða þeim í herbergin og þær komu sér fyrir, það var gaman að sjá hvað þær voru fljótar að kynnast og eignast nýjar vinkonur.
Í kaffitímanum í gær var boðið uppá bestu jógúrtköku í heimi. Eftir það var komið að skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá þar sem brennó keppnin var kynnt, og við komumst fljótt að því að það er mikið keppnisskap í hópnum. Einnig var fallegi skógurinn okkar vinsæll þar sem stelpurnar léku sér, svo er aparólan alltaf skemmtileg. Það var í boði að gera armbönd í setustofunni og margt fleirra. Í kvöldmatinn var grjónagrautur, sem sló heldur betur í gegn. Eftir matinn var aftur smá frjáls tími þar sem var mikil gleði. Á kvöldvökunni voru herbergin með atriði, foringjarnir voru með leiki og svo auðvitað sungum við skemmtilegu lögin okkar.
17.júlí
Stelpurnar vöknuðu glaðar eftir góðan nætursvefn, Uppþvottavélin okkar bilaði og við þurftum að borða morgunmatinn á pappa diskum, þannig það má segja að það hafi verið útilegustemming hjá okkur. Eftir morgunmat var morgunstund, þar sem við töluðum um hæfileikana okkar, og hvað það væri mikilvægt að rækta þá.Við vorum líka sammála um að allir væru góðir í eitthverju en enginn væri góður í öllu. Þá var komið að frjálsum tíma, það var í boði að gera fána í föndri, það voru íþróttakeppnir, armbandagerð og auðvitað vinsæla brennókeppnin.
Eigiði frábæran dag.
minni á að skoða myndir úr flokknum.
Bestu kveðjur
Kristín Björt