Stelpurnar vöknuðu við ljúfa tóna í morgunsárið, fengu sér morgunmat, fóru á fánahyllingu og gerðu herbergin sín fín. Hér í Ölveri er nefnilega hegðunarkeppni sem er mjög vinsæl, en í henni þurfa stelpurnar að halda herbergjunum sínum hreinum og vera kurteisar og jákvæðar.
Í biblíulestri töluðum við um að byggja upp okkar eigin líf á góðum grunni og hvaða gildi við tileinkum okkur í lífinu, hvernig manneskjur við viljum vera.
Veðrið hefur aðeins verið að stríða okkur og var lítil spenna fyrir því að spila brennó úti en brennó er vinsælasta keppnin sem haldin er í Ölveri og eftir biblíulestur var stelpunum tilkynnt í hvaða brennóliðum þær væru og að við ætluðum að fara í íþróttarhúsið í Borgarnesi að spila brennó.
Öll liðin fengu tíma til þess að græja liðið sitt með andlitsmálningu og peppa sig í gang.
Í hádegismatinn voru kjötbollur og kartöflumús sem stelpurnar borðuðu af bestu lyst, enda þurfti að næra sig vel fyrir komandi fjör.
Eftir hádegismatinn fórum við allar í rútu og mættum uppí íþróttarhús, stelpurnar spilupu alla brennóleikina fyrir vikuna á einu bretti og stóð liðið Erling Haaland uppi sem sigurverarar, þær meira að segja unnu foringjana í foringjabrennó en það gerist ekki oft.
Að loknu brennó snæddum við okkur á smákökum, rice krispies kökum og ávöxtum sem við höfðum tekið með okkur í nesti.
Stelpurnar höfðu verið duglegar að hreyfa sig þannig við skelltum okkur líka í sund í Borgarnesi.
Þegar við komum aftur í Ölver tók við frjáls tími fram að kvöldmat en það var boðið uppá ávaxtasúrmjólk og brauð með því.
Á kvöldvökunni sá Hamraver um skemmtiatriði kvöldsins og það var mikið sungið og mikið gaman. En þegar við vorum að syngja kvöldsönginn okkar mætti varúlfur og veiðimenn að trufla, þeir tilkynntu stelpunum að við værum að fara í miðnæturvarúlf og fengu allar stelpurnar hlutverk sem þær léku í leiknum.
Það var mikið að gera hjá okkur í dag og öllum var mjög heitt fyrir svefninn þannig eldhúsið var búið að græja fyrir okkur dýrindis ísbar þar sem allar fengu ís með sósu og nammi áður en það var haldið í háttinn.
Bestu Kveðjur úr Ölveri,
Lilja Maren, forstöðukona