Ævintýraflokkur Vindáshlíð – dagur fimm

Dagurinn í dag var síðasti heili dagurinn okkar í þessum skemmtilega ævintýraflokki. Leikið var til úrslita í brennó, Amazing Race var í gangi eftir hádegi og svo hinn sívinsæli vinagangur seinnipartinn. Þá undirbúa stelpurnar eitthvað sem þær bjóða hinum stelpunum upp á og er því eitthvað skemmtilegt í boði í hverju herbergi. Hárgreiðsla, förðun og spákona var meðal þess sem var í boði í dag. Við héldum svo í messu í fallegu kirkjunni okkar áður en boðið var til pizzaveislu í matsalnum. Foringjarnir skemmtu stelpunum á kvöldvöku með alls kyns misgáfulegum leikritum en allt fannst stelpunum þetta voða skemmtilegt enda gaman að sjá foringjana bregða sér í margs konar hlutverk og fara á kostum á sviðinu.
Að kvöldvöku lokinni fórum við aftur upp í kirkju þar sem við sungum saman, hlustuðum á hugleiðingu og báðum bæn.
Á morgun mun sigurliðið í brennó keppa við foringjana en það er alltaf æsispennandi keppni.
Við leggjum af stað héðan um kl. 14 á morgun og því ágætt fyrir ykkur forráðamenn að vera komin á Holtaveginn upp úr kl. 14:30.
Hlökkum til að sjá ykkur,
kær kveðja úr Vindáshlíð
Álfheiður forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum