Ölver – Unglingaflokkur 2026 – Dagur 1

Hér í Ölveri er núna fullt af hressum og skemmtilegum stelpum og frábært starfsfólk.
Við byrjuðum á því að hitast allar inn í matsal þar sem við fórum yfir helstu reglur og skiptum okkur upp í herbergi.

Þegar allar höfðu komið sér fyrir var dinglað í hádegismat og boðið uppá skyr og pizzabrauð.

Eftir hádegismat fórum við upp í Biblíusalinn okkar þar sem tóku við leikir sem gáfu öllum færi á að læra nöfn og kynnast aðeins fyrir komandi viku.

Í kaffitímanum var boðið uppá kanillengjur og bananabrauð sem rann vel niður.

Eftir kaffitíma mættu svo félagarnir Lars og Kalli með mjög áhugaverða spurningakeppni þar sem var meðal annars spurt útí íþróttir, foringjana, og Ölver.

Í kvöldmat var steiktur fiskur með kartöflum á boðstólnum. Eftir kvöldmat er alltaf kvöldvaka þar sem við syngjum saman, ýmis atriði koma fram og að lokum sögð stutt hugleiðing. Í þetta skipti sáu foringjar um atriði kvöldsins.

Þegar við vorum að syngja kvöldsönginn okkar sem er alltaf síðasta lag fyrir háttinn var textinn í einhverju rugli og mættu foringjarnir þá inn með náttfatapartý, það var mikið sungið og dansað. Stelpurnar fengu síðan að vita hver þeirra bænakona í vikunni er en bænakona sér um að koma stelpunum í ró í lok kvölds.

Náttfatapartýið okkar endaði með því að það fengu allir sleikjó á meðan þær hlustuðu á skemmtilega sögu.

Síðan fengu stelpurnar sér ávexti og kex í kvöldkaffi og gerðu sig tilbúnar í háttinn.

Í lok kvöldsins áttu öll herbergin notalega stund með sinni bænakonu áður en allir fóru að sofa.

Við erum spenntar að kynnast öllum þessum frábæru stelpum betur og lenda í ýmsum ævintýrum með þeim.

 Endilega fylgist með á myndasíðunni okkar þar sem birtast nýjar myndir á hverjum morgni.

Lilja Maren, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum